Fylgi stjórnarflokkanna dalar Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. desember 2025 18:59 Samfylkingin mælist enn stærst en fylgi Flokks fólksins hefur hjaðnað úr tæpum 14 prósentum í Alþingiskosningunum í fyrra í 5,5 prósent. Vísir/Anton Brink Miðflokkurinn mælist með tæplega 22 prósenta fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup en hann bætir rúmum tveimur prósentustigum við sig milli mánaða. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna fellur um fjögur prósentustig frá síðasta þjóðarpúlsi og mælist nú 47 prósent.
Ríkisútvarpið greinir frá niðurstöðum nýjasta þjóðarpúls Gallup. Þar er bent á að samkvæmt þeim myndi Miðflokkurinn tvöfalda þingmannafjölda ef gengið yrði til kosninga í dag, en flokkurinn hlaut tólf prósenta fylgi í Alþingiskosningunum í nóvember 2024. Samfylkingin mælist með mest fylgi flokka, eða tæpt 31 prósent. Á eftir Miðflokknum kemur Sjálfstæðisflokkurinn sem mælist með tæp 17 prósent. Fylgi Viðreisnar dalar mest frá síðasta þjóðarpúlsi og mælist 10,9 prósent, tæpum tveimur prósentustigum minna en í síðasta þjóðarpúlsi. Flokkur fólksins mælist með 5,5 prósenta fylgi og Framsókn með 5,2 prósenta fylgi. Til þess að ná manni inn á þing í kosningum þarf flokkur að ná minnst fimm prósentum atkvæða. Vinstri græn og Píratar mælast með um 3,5 prósenta fylgi og fylgi Sósíalistaflokksins mælist 1,6 prósent. Niðurstöður þjóðarpúls Gallup eru í líkingu við niðurstöður nýjustu könnunar Maskínu, sem bárust fyrir viku síðan. Þar mældist Samfylkingin með 28,9 prósent, Miðflokkurinn með 19,2 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn með 15,1 prósent. Fylgi Viðreisnar mældist 13,3 prósent í könnun Maskínu.
Skoðanakannanir Alþingi Samfylkingin Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Píratar Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira