Tvö og hálft ár í fangelsi fyrir hraðbankaþjófnað og Hamraborgarmálið Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 1. desember 2025 10:44 Hrannar hafði játað að hafa stolið hraðbankanum og aðild að Hamraborgarmálinu. Vísir Hrannar Markússon var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að tveimur af umfangsmestu þjófnaðarmálum Íslandssögunnar. Annars vegar fyrir þjófnað á hraðbanka í Mosfellsbæ fyrr á árinu og hins vegar Hamraborgarmálið svokallaða. Þá er Hrannar jafnframt sviptur ökuréttindum og til greiðslu þriggja milljóna króna í skaðabætur. Þá hlaut kona sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm vegna aðildar að hraðbankaþjófnaðinum.
Þetta staðfestir lögmaður Hrannars í samtali við Vísi en Rúv greindi fyrst frá dómnum sem enn hefur ekki verið birtur. Líkt og Vísir greindi frá í gær hafði Hrannar, sem er á fimmtugsaldri, játað aðild að tveimur af umfangsmestu þjófnaðarmálum Íslandssögunnar auk þess að vera grunaður um fjölda afbrota til viðbótar. Hrannar var dæmdur fyrir bæði þjófnaðarmálin en hann var auk þess ákærður fyrir önnur brot. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Hrannars, segir ekki liggja fyrir að svo stöddu hvort dómnum verði áfrýjað. Dóminn hlýtur Hrannar meðal annars fyrir þjófnað á hraðbanka í Mosfellsbæ í ágúst síðastliðnum. Fram kom í fréttum af málinu að hann hafi verið grunaður um að hafa stolið gröfu og ekið að nóttu til að þjónustukjarna í Þverholti þar sem Íslandsbanki er til húsa og stolið hraðbankanum svo gott sem í heilu lagi úr byggingunni með hjálp vinnuvélarinnar. Töluverðar skemmdir voru á byggingunni eftir verknaðinn. Þá hafði Hrannar einnig játað aðild að Hamraborgarmálinu svokallaða, þar sem tugum milljóna króna, ávinningi úr spilakössum, var stolið úr bíl öryggisfyrirtækis við Hamraborg í mars í fyrra. Myndefni úr öryggismyndavél sýndi tvo menn bakka eigin smábíl upp að öryggisbílnum, stela peningnum, og aka á brott, allt meðan öryggisverðir voru inni á Catalinu í Kópavogi að sækja pening úr spilakössunum. Var Hrannar dæmdur fyrir að hafa útvegað tveimur óþekktum aðilum bíl og svo komið bílnum og hluta fjárins undan.
Dómsmál Lögreglumál Hraðbanka stolið í Mosfellsbæ Peningum stolið í Hamraborg Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira