Gera hlé á veitingu verðtryggðra íbúðalána Eiður Þór Árnason skrifar 20. október 2025 15:12 Arion banki bíður nú niðurstöðu Hæstaréttar. Vísir/vilhelm Arion banki hefur gert hlé á veitingu verðtryggðra íbúðalána í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka þar sem skilmálar óverðtryggðs láns voru að hluta dæmdir ólögmætir.
Að sögn Arion banka eru skilmálar íbúðalána bankans með breytilega vexti ólíkir þeim sem voru til umfjöllunar í dómi Hæstaréttar. Óháð því muni dómstólinn síðar taka fyrir mál sem snýr að láni Arion banka með breytilegum verðtryggðum vöxtum. Landsréttur hafi dæmt bankanum í vil í febrúar en óvissa ríki nú um lögmæti vaxtabreytingarskilmála verðtryggðra lána. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka en í ljósi aðstæðna hafa stjórnendur hans ákveðið að gera hlé á veitingu verðtryggðra lána, bæði með föstum og breytilegum vöxtum. Þá verði metið hvort hægt sé að bjóða upp á bráðabirgðalausn þar til óvissu um lögmæti skilmálanna hafi verið eytt. Arion banki bendir á að óverðtryggð lán verði áfram í boði. Erfitt að meta nákvæm áhrif dómsins Arion banki gaf út þann 15. október að skilmálar íbúðalána bankans með ákvæðum um breytilega vexti væru frábrugðnir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Íslandsbanka. Því væri erfitt að meta nákvæm áhrif af dómnum á lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum Að því gefnu að sambærileg niðurstaða fengist í ágreiningsmáli um lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum væri það bráðabirgðamat bankans að fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu yrðu óveruleg. Ekki fyrsti bankinn sem gerir hlé á lánveitingum eftir dóminn Landsbankinn tilkynnti í síðustu viku að hlé yrði gert á vinnslu lánsumsókna fram yfir helgi á meðan bankinn greindi áhrif áðurnefnds dóms Hæstaréttar. Móttaka nýrra umsókna um íbúðalán yrði sett á bið en unnið með viðskiptavinum að afgreiðslu þeirra lánsumsókna sem þegar eru í vinnslu hjá bankanum. Á vef Landsbankans kemur nú fram að enn sé unnið að því að meta áhrif dóms Hæstaréttar og til standi að kynna breytingar á lánaframboði bankans á næstu dögum. Þá hefur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) gert hlé á úrvinnslu íbúðalána með breytilegum vöxtum og afgreiðir nú eingöngu umsóknir um lán með föstum vöxtum út lánstímann. LSR hyggst afgreiða allar lánsumsóknir sem voru þegar í vinnslu hjá sjóðnum á föstudag. Fréttin er í vinnslu.
Arion banki Tengdar fréttir Skilmálar Arion frábrugðnir en áhrifin væru óveruleg Arion banki bendir á að skilmálar íbúðalána bankans með ákvæðum um breytilega vexti séu frábrugðnir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Íslandsbanka og því sé erfitt að meta nákvæm áhrif af dómnum á lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum. Að því gefnu að sambærileg niðurstaða fengist í ágreiningsmáli um lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum sé það bráðabirgðamat bankans að fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu yrðu óveruleg. 15. október 2025 11:18 Vill laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ Bankastjóri Arion banka segir verðtryggingu hafa mikil áhrif á vaxtastigið hér á landi. Tímabært sé að ræða með opnum hug hvort rétt sé að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku hagkerfi og laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ sem farið hafi af stað árið 1979. Það myndi kalla á breytingar á uppbyggingu réttindakerfis lífeyrissjóðanna. 7. október 2025 14:06 Skilmálarnir umdeildu ógiltir Hæstiréttur hefur fallist á kröfur neytenda að hluta í Vaxtamálinu svokallaða. Málið varðaði tugmilljarða hagsmuni neytenda annars vegar og stóru viðskiptabankanna þriggja hins vegar. 14. október 2025 13:36 Mest lesið Þórunn seld og tuttugu sagt upp Viðskipti innlent Gera hlé á veitingu verðtryggðra íbúðalána Viðskipti innlent Gætu þurft að draga úr framleiðslu á Grundartanga Viðskipti innlent Nathan & Olsen og Ekran verða Nathan Viðskipti innlent Snapchat og Duolingo í basli vegna bilunar hjá Amazon Viðskipti erlent Telja menningarframlag vinna gegn yfirlýstum tilgangi sínum Viðskipti innlent Boeing 777-fraktþotur bætast í flota Atlanta Viðskipti innlent Þriðja barnið er æðislegur íshellir Atvinnulíf Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Samstarf Kalla inn vínarpylsur vegna aðskotahlutar Neytendur Fleiri fréttir Gera hlé á veitingu verðtryggðra íbúðalána Gætu þurft að draga úr framleiðslu á Grundartanga Boeing 777-fraktþotur bætast í flota Atlanta Nathan & Olsen og Ekran verða Nathan Þórunn seld og tuttugu sagt upp Telja menningarframlag vinna gegn yfirlýstum tilgangi sínum Flugumferðarstjórar verði að sætta sig við sömu launahækkanir og aðrir Segir ótækt að fámennur hópur geti lokað landinu Hefur áhyggjur af stöðu Sýnar og boðar fjölmiðla til samráðs Nokkrum sagt upp eftir afkomuviðvörun Sýnar Origo kaupir Kappa Fyrrverandi fréttastjóri til Gímaldsins Gengi Sýnar í frjálsu falli Erlent flugfélag eitt þriggja sem vill niðurgreiðslu á losun frá íslenska ríkinu Íslenskt hugvit verndar fólk fyrir djúpfölsun Sýn gefur út afkomuviðvörun Hagar högnuðust um 3,7 milljarða króna Brjóti mögulega samkeppnislög með því að tjá sig um dóminn Icelandair hleypur í skarðið fyrir Play ASÍ ítrekar ákall til stjórnvalda um að bregðast við lokun PCC á Bakka Gengi Icelandair hrapar Hærri kostnaður en áætlanir gerðu ráð fyrir Landsbankinn setur lánaumsóknir á ís vegna dómsins Sveitarfélagið og útgerðarmenn byggja nýjan miðbæ á Höfn Skilmálar Arion frábrugðnir en áhrifin væru óveruleg Gera ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif muni nema innan við milljarði króna Ballið búið hjá Bankanum bistró Ómögulegt að meta áhrifin á bankana Vextirnir hækkuðu minna en stýrivextir þrátt fyrir ólögmæta skilmála Niðurstaðan sigur fyrir neytendur og lántakendur Sjá meira
Skilmálar Arion frábrugðnir en áhrifin væru óveruleg Arion banki bendir á að skilmálar íbúðalána bankans með ákvæðum um breytilega vexti séu frábrugðnir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Íslandsbanka og því sé erfitt að meta nákvæm áhrif af dómnum á lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum. Að því gefnu að sambærileg niðurstaða fengist í ágreiningsmáli um lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum sé það bráðabirgðamat bankans að fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu yrðu óveruleg. 15. október 2025 11:18
Vill laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ Bankastjóri Arion banka segir verðtryggingu hafa mikil áhrif á vaxtastigið hér á landi. Tímabært sé að ræða með opnum hug hvort rétt sé að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku hagkerfi og laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ sem farið hafi af stað árið 1979. Það myndi kalla á breytingar á uppbyggingu réttindakerfis lífeyrissjóðanna. 7. október 2025 14:06
Skilmálarnir umdeildu ógiltir Hæstiréttur hefur fallist á kröfur neytenda að hluta í Vaxtamálinu svokallaða. Málið varðaði tugmilljarða hagsmuni neytenda annars vegar og stóru viðskiptabankanna þriggja hins vegar. 14. október 2025 13:36