Körfubolti

Vals­menn bjóða núna upp á sér­stakt Frank Booker árs­kort

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsmenn fóru nýja leiðir í hönnun árskorta sinna.
Valsmenn fóru nýja leiðir í hönnun árskorta sinna. @valurkarfa

Bónus deild karla í körfubolta fór af stað með fjórum leikjum í gærkvöldi. Valsmenn spila þó ekki sinn fyrsta leik fyrr en á morgun.

Valur fær þá Tindastól í heimsókn á Hlíðarenda en liðin hafa spilað marga stórleikina á síðustu árum.

Valsmenn kynntu árskortin sín í aðdraganda leiksins og þeir eru búnir að færa þau í nýjan búning. Það þekkist oft að vera með gull eða silfurkort en Valsmenn sækja nöfnin í söguna.

Þeir bjóða núna upp á bæi Frank Booker kortið og Hollywood stuðkortið. Bæði kortin kosta reyndar sitt.

Frank Booker árskortið kostar 120 þúsund krónur. Það gildir á alla deildarleiki fyrir tvo, tryggir sæti á gólfi í úrslitakeppni, viðkomandi fær drykk og borgara í úrslitakeppni fyri tvo og kortinu fylgja tvær keppnistreyjur.

Kortið er nefnt eftir Frank Booker sem spilaði þrjú tímabil með Val frá 1991 til 1994 og fór með liðið alla leið í oddaleik um titilinn vorið 1992. Sonur hans, Aron Booker, spilar með Valsliðinu í dag.

Hollywood stuðkortið kostar 100 þúsund krónur. Það gildir á alla deildarleiki fyrir fjóra og tryggir sæti á gólfi í úrslitakeppni.

Kortið er nefnt Hollywood skemmtistaðnum sem var vinsæll á gullaldarárum Valsmanna í kringum 1980 þegar Valsmenn unnu tvo Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla á fjórum tímabilum. Valsmenn auglýstu líka staðinn á búningum sínum á þessum árum.

Hér má sjá frekari upplýsingar um árskort Valsmanna í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×