Viðskipti innlent

Fall Play á­fall en að ein­hverju leyti fyrir­séð

Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Hanna Katrín segir þegar hafin samtöl innan hennar ráðuneytis við helstu hagsmunaaðila.
Hanna Katrín segir þegar hafin samtöl innan hennar ráðuneytis við helstu hagsmunaaðila. Vísir/Lýður Valberg

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir fall Play áfall en að einhverju leyti hafi það verið fyrirséð. Stjórnendur fyrirtækisins hafi verið mjög opnir með rekstrarerfiðleika félagsins. Tilkynnt var um gjaldþrot félagsins í gær. Um 400 manns misstu vinnuna og eru þúsundir strandaglópar á Íslandi og víða um heim vegna þess.

„Svona er alltaf högg og fyrstu viðbrögð eru alltaf að hugsa til þess fjölda starfsfólks sem missir vinnuna mjög skyndilega,“ segir Hanna Katrín en rætt var við hana að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur þegar gefið út að ríkissjóður sé í standi til að taka utan um þau sem misstu vinnuna en þetta sé líka högg fyrir ferðaþjónustuna. Tímasetningin sé að einhverju leyti heppileg því hánnatímabili sé lokið. Það megi búast við því að markaðurinn, önnur flugfélög, nái að mæta þeirri eftirspurn sem nú skapast.

Hún segir viðbragð hafa verið sett af stað strax í gær í ráðuneyti hennar, bæði samtöl við önnur ráðuneyti og svo stofnanir og hagsmunasamtök.

„Þetta snýst auðvitað um það að það er alltaf vont þegar samkeppni á markaði minnkar. Þannig það er það sem þarf að líta til. Við erum líka að huga að neytendum,“ segir hún og að margir verði fyrir fjárhagslegu tjóni.

Hvað varðar orðstírsáhættu segir Hanna Katrín rekstur flugfélaga áhætturekstur og gjaldþrot Play sé ekki einsdæmi. Það muni samt sem áður skipta máli hvernig er brugðist við en hún sé sannfærð um að viðbrögðin verði góð miðað við það sem hún heyrir.

„Ferðaþjónustan er það sterk atvinnugrein, ég hef ekki áhyggjur af því.“

Hanna Katrín segir stóru áskorunina í ferðaþjónustu núna að byggja upp innviði og tryggja að upplifun ferðamanna sé sem best. Þá sé einnig unnið að markaðssetningu.

„Þannig ég bara jákvæð fyrir hönd ferðaþjónustunnar.


Tengdar fréttir

Ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugstjóri hjá Icelandair segist ekki finna til ábyrgðar vegna gjaldþrots Play. Play kvartaði til Samkeppniseftirlitsins eftir fullyrðingar hans í fjölmiðlum byrjun mánaðar þar sem hann spáði gjaldþroti Play. Hann segist hafa áhyggjur af orðspori Íslands í flugrekstri.

Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna

Gjaldþrot Play er verulegt högg fyrir ferðaþjónustu hér á landi að minnsta kosti næstu mánuðina. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar og jafnframt að því fylgi nokkur óvissa þegar kemur að bókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum í vetur.

Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað

Arion banki segir í nýrri efnahagsspá sinni að höggið við brotthvarf Play á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað. Hlutdeild Play í komum erlendra ferðamanna til landsins hafi verið komin undir tíu prósent við fall félagsins í gær. Hlutdeild Icelandair sé um fjörutíu prósent til samanburðar. Áhrifin verði þó alltaf einhver á flugframboð og atvinnuleysi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×