„Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. september 2025 13:28 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ræðu í tilefni af flokksstjórnarfundi Samfylkingar á Hellu. Samfylking Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ríkissstjórnina hafa sett saman sérstakan húsnæðis- og efnahagspakka. Hún ávarpaði flokksstjórnarfund Samfylkingarinnar á Hellu í dag.
Í ræðu Kristrúnar er lítið um útfærsluatriði enda um eins konar fundarsetningarræðu að ræða en hún segir að þetta verði „stór pakki“ með nýjum efnahagsaðgerðum sem virkilega muni um. Hann verði kynntur á næstu vikum. Forsætisráðherra sagði aðgerðirnar fela í sér tiltekt sem vinni gegn þenslu, markvissari húsnæðisstuðning og meiri húsnæðisuppbyggingu með aukinni skilvirkni og fyrirsjáanleika. Þá feli hann einnig í sér einföldun regluverks og „margháttaðar aðgerðir sem við í Samfylkingu höfum talað fyrir til að draga úr hvata til að fjárfestingarvæða íbúðir.“ Loka eigi glufum og draga úr undanþágum í skattkerfinu. Kristrún sagði einnig að frumvörp frá vorþingi um Airbnb-útleigu verði endurflutt. Þannig eigi að koma á betri yfirsýn og sanngjarnari reglum með skráningarskyldu á leigumarkaði. „Og allt verða þetta aðgerðir sem hægt verður að ganga í og framkvæma hratt. Því að þessi ríkisstjórn er fyllilega meðvituð um að það er löngu komið nóg af fögrum fyrirheitum og alls konar hugmyndum í húsnæðismálum. Við kynnum því ekki neitt nema það sem okkur er full alvara með að framkvæma,“ sagði hún.
Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira