Fluttur á spítala eftir mislukkað áhættuatriði Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. september 2025 12:02 Tom Holland í ofurhetjugallanum við tökur á næstu mynd um Köngulóarmanninn. Getty Leikarinn Tom Holland slasaðist við tökur á áhættuatriði fyrir næstu mynd um Köngulóarmanninn. Farið var með hann á spítala þar sem hann greindist með heilahristing og hefur verið gert tímabundið hlé á tökum.
Dægurmálamiðillinn Variety greinir frá slysinu sem átti sér stað í Leavesden-kvikmyndaverinu í Watford á föstudag. Þar segir að Holland hafi verið að taka upp áhættuatriði þegar hann fékk högg á höfuðið. Í kjölfarið var farið með hann á hraði á spítala þar sem hann reyndist vera með vægan heilahristing. Götublaðið The Sun segir Holland hafa verið viðstaddan góðgerðarkvöldverð degi síðar með föður sínum, grínistanum Dominic Holland, og Zendayu, unnustu sinni og meðleikkonu. Tom hafi þurft að yfirgefa kvöldverðinn snemma vegna slappleika. Tökum á kvikmyndinni, sem ber heitið Spider-Man: Brand New Day, var frestað eftir slysið og mun Holland taka sér pásu frá tökum meðan hann jafnar sig. Framleiðendur myndarinnar eru sagðir ætla að funda í dag til að ákveða hver næstu skref verði. Spider-Man: Brand New Day verður frumsýnd í júlí 2026 og er fjórða myndin um köngulóarmanninn þar sem Holland klæðist búningnum. Auk hans fara Zendaya, Jacob Batalon, Mark Ruffalo, Jon Bernthal, Michael Mando, Liza Colón-Zayas, Tramell Tillman og Sadie Sink með hlutverk í myndinni.
Bandaríkin Bretland Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Fleiri fréttir Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira