Hörður og Svala endurvekja Macland Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. september 2025 10:54 Macland lifir á ný. Hörður Ágústsson, stofnandi Macland, segir fyrirtækið komið aftur í sínar hendur þremur árum eftir að hann hætti öllum afskiptum af því. „Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg. Í hvaða formi og hvenær er enn óljóst,“ segir hann jafnframt.
Hörður greinir frá þessu á bæði Facebook og X. „Eftir að samfélagsmiðlar Macland vöknuðu úr rúmlega árslöngu (þ)roti hef ég fengið gríðarlegt magn af skilaboðum um hvort þetta sé ég að pósta. Svarið er einfalt. Já. Þetta er ég,“ skrifar hann. Hann rekur síðan hvernig hann stofnaði Macland með eiginkonu sinni, Svölu Hjörleifsdóttur, árið 2009 á Vífilsgötu í Reykjavík þar sem þau voru frameftir nóttu með tvö ungabörn að gera við tölvur. „Stuttu síðar hófum við sölu á Apple vörum og fengu fyrstu viðskiptavinirnir valkost um að sækja pantanir á heimili okkar á Vífilsgötu eða fá heimsendingu þar sem ég mætti með GSM posa til þeirra.“ Áfall, brotthvarf og gjaldþrot Hermann Fannar Valgarðsson, vinur Harðar, bættist í hópinn árið 2010 og úr varð fyrsta verslun Macland sem opnuð var 21. desember 2010 í gamla Sirkushúsinu við Klapparstíg 30. „Hermann Fannar lést árið 2011 og varð hans skarð aldrei bætt að fullu en orkan, hugmyndirnar og framkvæmdagleðin varð eftir,“ skrifar Hörður í færslunni. „Við tók tímabil þar sem Macland fluttist milli staðsetninga á Laugavegi, opnaði verslun í Hafnarfirði, lokaði verslun í Hafnarfirði, opnaði verslun í Kringlunni og rak verkstæði í Ármúla. Árið 2021 var það besta í sögu félagsins og öll vinnan sem ég hafði lagt á mig í rúman áratug var að fara að skila sér,“ skrifar hann. En síðan tók lukkan að snúast. „Seint árið 2021 og snemma árs 2022 urðu miklar breytingar hjá þáverandi rekstrarfélagi Macland sem endaði með því að ég hætti störfum og öllum afskiptum af félaginu,“ skrifar Hörður. Sjá: Hörður hættir í Macland Árið 2024 varð mikill bruni í Kringlunni og á fyrri hluta þessa árs 2025 var Makkland ehf. tekið til gjaldþrotaskipta. Síðan hafi Hörður endurheimt lénið og samfélagsmiðla fyrirtækisins. „Þið, viðskiptaVINIR Macland eruð hér enn“ „Hvert einasta skref sem við tókum frá árinu 2009 var lærdómsríkt og það leikur enginn vafi í dag á því að sú reynsla að hafa byrjað á svona hráum grunni hafi átt stærstan þátt í að skapa þá ástríðu sem við berum í brjósti fyrir Maclandinu okkar,“ skrifar Hörður. Meðbyrinn og hvatningin sem þeim hjónum hafi borist síðustu mánuði hafi verið ómetanleg. „En það sem hefur kannski komið mér mest á óvart eru samskiptin við birgjana sem ég byggði upp, bæði hérlendis og erlendis áður en ég hætti,“ skrifar hann. „Það er falleg tilfinning sem hríslast um okkur þegar horft er til baka á fyrstu viðgerðina sem framkvæmd var á eldhúsborðinu á Vífilsgötunni. Allar hindranirnar, lærdómurinn, mistökin, tækifærin, og svo allar manneskjurnar sem tengdust okkur í gegnum Macland á árunum 2009- 2022 gerðu þetta allt að veruleika. Þið, viðskiptaVINIR Macland eruð hér enn. Fyrir það erum ég og Svala gríðarlega þakklát.“
Vistaskipti Tímamót Tengdar fréttir Tapaði trúnni á lífið eftir missinn: „Ég sökk djúpt“ Árið 2010 var keyrt á Hörð Ágústsson og er hann í dag átta prósent öryrki fyrir vikið. Þetta gerðist á mjög annasömum tíma þegar hann ásamt vinum sínum var að stofna fyrirtækið Macland, og lýsir Hörður þessu sem erfiðum tíma af sínu lífi. 14. október 2021 12:06 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Tapaði trúnni á lífið eftir missinn: „Ég sökk djúpt“ Árið 2010 var keyrt á Hörð Ágústsson og er hann í dag átta prósent öryrki fyrir vikið. Þetta gerðist á mjög annasömum tíma þegar hann ásamt vinum sínum var að stofna fyrirtækið Macland, og lýsir Hörður þessu sem erfiðum tíma af sínu lífi. 14. október 2021 12:06