Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. júlí 2025 10:47 Bíll í rennunni svonefndu þar sem Isavia sektar fólk sem er lengur en fimm mínútur. Vísir Neytendastofa hefur sektað Isavia um hálfa milljón króna vegna brota á lögum um upplýsingagjöf og viðskiptahættir vegna gjaldskyldra svæða á Keflavíkurflugvelli voru ekki í samræmi við lög.
Greint er frá því á vef Neytendastofu að hún hafi haft til skoðunar upplýsingagjöf og viðskiptahætti Isavia ohf. vegna gjaldskyldra svæða á Keflavíkurflugvelli. Stofnunin hafi nú lokið ákvörðun í málinu þar sem upplýsingagjöf og viðskiptahættir Isavia voru ekki í samræmi við lög. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að Isavia hafi brotið gegn lögum um góða viðskiptahætti sem og reglum um verðmerkingar með því að veita neytendum ekki fullnægjandi upplýsingar um öll gjöld tengd gjaldskyldum svæðum félagsins. Þá var það álit stofnunarinnar að með hliðsjón af staðsetningu myndavéla, skorti á upplýsingum um að þjónustugjald leggist á eftir fimm mínútna viðveru og að teknu tilliti til þess þrönga tímaramma sem neytendum er gefinn til afferminga, sé tilhögun gjaldtöku í brottfararrennu Isavia viðskiptahættir sem séu óréttmætir gagnvart neytendum. Þá komst stofnunin einnig að þeirri niðurstöðu að Isavia hafi viðhaft villandi viðskiptahætti með því að láta líta út fyrir að sjálfvirkt greiðslukerfi/gjaldtaka væri til staðar án þess að tekið væri fram að virkja þurfi það sérstaklega. Stofnunin taldi tilefni til að beita stjórnvaldssekt og nam sektarfjárhæðin fimm hundruð þúsund krónum. Isavia innanlandsflugvellir ehf., félag í eigu Isavia sem kemur að rekstri innanlandsflugvalla, var í júní sektað fyrir óskýrar og misvísandi merkingar um gjaldheimtu á bílastæðum við Reykjavíkurflugvöll. Sú sekt hljóðaði einnig upp á hálfa milljón króna.
Isavia Keflavíkurflugvöllur Bílastæði Neytendur Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira