Innlent

Næstlengsta þingdeila sögunnar nartar í hæla þriðja orkupakkans

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Jón Pétur Zimsen hefur flutt 44 ræður um veiðigjaldafrumvarpið þegar þetta er skrifað.
Jón Pétur Zimsen hefur flutt 44 ræður um veiðigjaldafrumvarpið þegar þetta er skrifað. Vísir/Anton Brink

Umræðan um veiðigjaldafrumvarpið er nú orðin sú næstlengsta frá árinu 1991 eftir að hafa tekið fram úr umræðunni um Icesave-ábyrgðina frá 2010. Veiðigjöldin hafa nú verið rædd í ríflega 136 klukkustundir og narta í hælana á þriðja orkupakkanum.

Ljóst varð skömmu eftir klukkan níu í kvöld að veiðigjaldafrumvarpið hefði tekið fram úr Icesave. Ekki liggur alveg ljóst fyrir hvaða stjórnarandstöðuþingmaður var í pontu eða hvaða orð voru látin falla þegar þessum merka áfanga var náð en líklega eru það annað hvort Bryndís Haraldsdóttir eða Sigurður Ingi Jóhannsson samkvæmt mælendaskrá.

Um tíu mínútum eftir að annað sætið var tryggt var öðrum áfanga náð. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins hélt sína fyrstu ræðu um veiðigjaldafrumvarpið og þar með hafa allir þingmenn stjórnarandstöðunnar flutt sína 20 mínútna ræðu fyrir þingið.

Alþingi var sameinað í eina málstofu árið 1991. Þónokkur þingmál hafa fengið mikla umræðu síðan en aðeins fjögur náð yfir hundrað klukkustunda múrinn. Innleiðing EES-samningsins árið 1993 var rædd í rúmlega hundrað klukkustundir, Icesave-ábyrgðin var rædd í rúmlega 135 klukkustundir árið 2010 og loks trónir umræðan um þriðja orkupakkann á toppnum en hún var rædd í 147 klukkustundir árið 2019. Nú hefur veiðigjaldafrumvarpið náð 137. klukkustund sinni í pontu og því farið að seilast ískyggilega í nafnbót lengstu þingdeilu sögunnar.

Sérstaklega í ljósi þess að ekkert bendi til þess að umræðunni ljúki í bráð að svo komnu máli. Bryndís Haraldsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins gekkst við því fyrr í dag í viðtali í Reykjavík síðdegis að stjórnarandstaðan væri að stunda málþóf. Hún sjálf flytur sínar 42. ræðu um frumvarpið seinna í kvöld.


Tengdar fréttir

Stjórnar­and­staða setji ný viðmið á þingi sem ógni lýðræðinu

Algjör pattstaða ríkir á Alþingi. Viðræður um þinglok hafa ekki skilað árangri og á meðan halda maraþonumræður um veiðigjöld áfram. Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir umræður um þinglok mjakast áfram. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingkona Flokks fólksins, segir stjórnarandstöðuna setja ný viðmið sem ógni lýðræðinu. 

Gagnrýni Bryndísar á málþóf frá 2019 vekur athygli

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í skoðanagrein árið 2019 að málþóf ætti ekkert skylt við málfrelsi eða lýðræði og þekktist nánast hvergi utan Íslands. Breyta þyrfti fyrirkomulaginu á Alþingi svo fámennur hópur stjórnarandstæðinga gæti ekki tekið þingið í gíslingu.

Lágkúra og della að mati ráðherra

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir lágkúrulegt af stjórnarandstöðunni að halda því fram að breytingar hjá fiskeldisfyrirtæki á Þingeyri tengist fyrirhuguðum breytingum á veiðigjöldum. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×