Íslenski boltinn

Stúkan: Ó­líkt Vestra en átti annað mark ÍA að standa og hver skoraði?

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Mjög erfitt er að meta í endursýningu hvort Ómar Björn hafi verið fyrir innan, og hvort hann hafi snert boltann.
Mjög erfitt er að meta í endursýningu hvort Ómar Björn hafi verið fyrir innan, og hvort hann hafi snert boltann. sýn sport / stúkan

ÍA sótti 0-2 sigur gegn Vestra í fyrsta leiknum undir stjórn Lárusar Orra Sigurðssonar. Vestramenn hleyptu þar inn marki sem þeir eru ekki vanir að fá á sig en nokkrum spurningum er enn ósvarað, svosem hver skoraði markið og hefði það yfirhöfuð átt að standa?

„Mark eins og þetta er ekki mark sem Vestri er að fá mikið á sig. Þetta er algjörlega úr karakter“ sagði sérfræðingurinn Sigurbjörn Hreiðarsson í gær um annað mark ÍA gegn Vestra, sem kom upp úr hornspyrnu á fjærstöngina.

Boltinn var skallaður fyrir markið og áður en markmaðurinn Guy Smit náði að handsama hann potaði annað hvort Ómar Björn Stefánsson eða Gísli Laxdal Unnarsson tánni í boltann.

„Það sem ég velti fyrir mér líka þarna, er Ómar ekki innstur? Mér finnst hann vera fyrir innan Anton Kralj og í raun og veru rangstæður“ sagði þáttastjórnandinn Guðmundur Benediktsson.

„Við viljum löglegt mark þannig að við skráum þetta á Gísla“ sagði sérfræðingurinn Albert Ingason.

Erfitt er að meta út frá sjónarhorni endursýningarinnar hver átti síðustu snertingu eða hvort Ómar hafi verið rangstæður en markið og umræðu Stúkunnar má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Átti annað mark ÍA að standa og hver skoraði?



Fleiri fréttir

Sjá meira


×