Innlent

Maður féll í Svöðufoss

Agnar Már Másson skrifar
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út um kl. 13.
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út um kl. 13. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð til um klukkan 13 í dag til að sækja mann sem hafði fallið ofan í Svöðufoss á Snæfelssnesi. Maðurinn hefur nú verið fluttur á Fossvogsspítala en ekkert liggur fyrir um ástand hans.

Hinrik Wöhler, staðgengill samskiptastjóra Landsbjargar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu að um tíu björgunarsveitamenn úr björgunarsveitinnisveitinni Lífsbjörg hafi tekið þátt í aðgerðinni eftir að útkallið hafði borist um kl. 13. Rúv greindi fyrst frá og segir mannin hafa fallið fimm metra ofan í fossinn. 

Svöðufoss er alls 10 metra hár og er staðsettur í Hólmkelsá skammt frá Rifi. 

Tf-Eir, þyrla Landhelgisgæslunnar, lenti á Fossvogsspítala um klukkan 14.35 samkvæmt kortagögnum. Hinrik segir að aðstæður hafi verið fínar, þó landslagið hafi verið krefjandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×