Viðskipti erlent

Tvö­faldar tolla á inn­flutt stál og ál

Lovísa Arnardóttir skrifar
Forsetinn tilkynnti í gær um tvöföldun tolla á innflutt stál og ál. Frá því að hann tók við í janúar hefur hann tilkynnt um fjölda tollahækkanna.
Forsetinn tilkynnti í gær um tvöföldun tolla á innflutt stál og ál. Frá því að hann tók við í janúar hefur hann tilkynnt um fjölda tollahækkanna. Vísir/EPA

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að Bandaríkin muni tvöfalda tolla á innflutt stál og ál, úr 25 prósent í 50 prósent. Breytingin tekur gildi næsta miðvikudag. Trump greindi frá þessu á baráttufundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu.

Þar sagði Trump að breytingin ætti að styrkja innlendan stáliðnað og framboð innanlands þannig þau þurfi ekki að treysta á kínverska framleiðslu.

Fjallað er um málið á vef BBC í dag. Þar kemur fram að á sama fundi hafi Trump tilkynnt að fjárfesta ætti fjórtán milljörðum í stáliðnaðinn í samstarfi framleiðenda í Bandaríkjunum og Japan en sagði þó á sama fundi að enn ætti eftir að staðfesta samkomulagið. Í frétt BBC segir að fólk hafi, í tengslum við þetta samkomulag, mestar áhyggjur af því að lög um vinnuréttindi verði ekki tryggð í Japan.

„Það verða engar uppsagnir og engum verkefnum útvistað, og allir stáliðnaðarmenn fá fljótlega vel verðskuldaðan fimm þúsund dollara bónus,“ sagði Trump á fundi með stáliðnaðarmönnum í Pittsburgh við mikinn fögnuð.

Þá sagði hann einnig að hann hefði, með tollahækkunum í sinni fyrri forsetatíð, bjargað stáliðnaðinum með hækkun tolla og að hann ætlaði nú að gulltryggja hann með enn hærri tollum. Sala á stáli hefur minnkað síðustu ár og gróði minnkað sömuleiðis. Trump sagði í ræðu sinni að með því að hækka tolla í 50 prósent myndi hann tryggja að ekki væri hægt að líta fram hjá þeim.

Minni eftirspurn eftir bandarísku stáli

Í frétt BBC segir að bandarískur stáliðnaður hafi dregist saman síðustu ár og aukist í Kína, Indlandi og Japan. Fjórðungur alls stáls sem er notað í Bandaríkjunum er innflutt og það hefur reitt Trump hversu mikið bandarískur iðnaður hefur þurft að reiða sig á stál frá bæði Mexíkó og Kanada.

Tilkynningin kom stuttu eftir að dómstóll í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu að Trump fór út fyrir valdheimildir sínar þegar hann fyrirskipaði tollahækkanir á fjölmörg ríki fyrr á árinu í skjóli laga um neyðarvald.

Dómurinn var kveðinn upp í vikunni af Alþjóðaviðskiptadómi Bandaríkjanna í Manhattan en var umsvifalaust áfrýjað til æðri dómstóls af ríkisstjórn Trump og því er framhaldið óljóst. Ríkisstjórnin er sögð efast um hvort dómstóllinn hafi umboð til að dæma í málinu. Tvö mál voru til umfjöllunar samtímis hjá dómstólnum, eitt frá ríkjum sem eiga í viðskiptasambandi við Bandaríkin og annað frá bandalagi nokkurra ríkisstjórna innan Bandaríkjanna. Ekki var í málsóknunum fjallað um tolla hans á innflutt stál og ál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×