Kanada

Kanada

Höfuðborg: Ottawa. Mannfjöldi: 41,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.984.670 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Safna í sér­stakt sjóherlið á Norður­slóðum

Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vinkonuferð til Ís­lands tók ó­vænta stefnu

Avery Francis fór í stelpuferð til Íslands, eftir ár sem hún lýsir sem því versta í sínu lífi. Skipbrot í starfi, kulnun og áföll í einkalífi höfðu tekið sinn toll og hún hafði verið einhleyp í sex ár. Hún var ekki að leita að sambandi. Síðasta kvöldið í ferðinni kynntist hún íslenskum manni í miðbæ Reykjavíkur og þar kviknaði eitthvað óvænt. Þau hittust aftur ári síðar, og það fyrir einskæra tilviljun. Nú eru þau hjón og Avery býr hér og skipuleggur kvennaferðir til Íslands, sem hún kallar besta stað í heimi.

Lífið
Fréttamynd

„Þjóðin syrgir með ykkur“

Mark Carney forsætisráðherra Kanda segir alla þjóðina syrgja með íbúum Tumbler Ridge í Kanada. Tíu eru látin í kjölfar skotárásar í framhaldsskóla í gær. Ástæða skotárásar og tengsl geranda og fórnarlamba hafa ekki verið gefin upp. Fram hefur komið að árásarmaður sé kona en það hefur ekki verið staðfest. 

Erlent
Fréttamynd

Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það.

Erlent
Fréttamynd

Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum?

Connor Storrie og François Arnaud, leikararnir sem eru að gera allt vitlaust með stjörnuleik í kanadísku þáttunum Heated Rivalry, hafa sést nokkrum sinnum opinberlega saman síðustu vikur. Aðdáendur velta því fyrir sér hvort leikararnir séu í sambandi. 

Lífið
Fréttamynd

Ævin­týri á slóðum Vestur­fara

Ég fékk þann heiður að fara sem einskonar sendiherra Snorra-verkefnisins til Manitoba í Kanada síðasta sumar. Snorraverkefnið, í nánu samstarfi við ÞFÍ, leitast við að styrkja tengslin á milli Íslendinga og Vestur-Íslendinga með ferðum fyrir ungt fólk þar sem það fær að kynnast sögunni og mynda tengsl við ættingja.

Skoðun
Fréttamynd

Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir ára­tug á flótta

Kanadamaðurinn Ryan Wedding, sem keppt hefur á Vetrarólympíuleikunum fyrir hönd Kanada, hefur verið handtekinn en hann var einn af þeim tíu mönnum sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) vilja mest koma höndum yfir. Wedding hefur verið ákærður fyrir morð, smygl og peningaþvætti og hefur verið á flótta frá 2015.

Erlent
Fréttamynd

Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á mat­seðlinum“

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, lýsti breyttri heimsskipan og biðlaði til ríkja, annarra en stórvelda, að taka þátt í að veita stórveldapólitík mótvægi og taka þátt í mótun nýs heimsskipulags. Hann varar við því að heimurinn sé staddur í miðjum umbrotum þar sem stórveldi hafi vopnavætt viðskipti og tolla og misnoti efnahagslega innviði sem kúgunartæki. Minni og meðalstór ríki þurfi að sýna mótvægi við stórveldapólitík og boða breytta heimsskipan sem byggi á öðrum gildum.

Erlent
Fréttamynd

Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Ís­lands

Brigitte Bardot heimsótti Ísland tvívegis með skömmu millibili árið 1977. Heimsóknirnar vöktu mikla athygli fjölmiðla hér á landi og var önnur þeirra kallað „leyniferðlag“ í Dagblaðinu. Um var að ræða tvær stuttar millilendingar á Reykjavíkurflugvelli þegar hún flaug frá heimalandi sínu, Frakklandi, til Nýfundnalands og svo til baka.

Lífið
Fréttamynd

Deila fyrstu myndunum af hvort öðru

Poppsöngkonan Katy Perry birti myndir af sér og nýja kærastanum Justin Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, á Instagram. Parið eyddi nokkrum dögum saman í Japan þar sem þau bæði smökkuðu japanska matargerð en hittu einnig fyrrverandi forsætisráðherra landsins.

Lífið
Fréttamynd

Harbour og „Madeline“ sögð hafa endur­nýjað kynnin

Leikarinn David Harbour, sem skildi fyrr á árinu við popparann Lily Allen, er talinn hafa endurnýjað kynni sín við búningahönnuðinn Natalie Tippett sem hann hélt við meðan þau Allen voru enn gift. Allen samdi heila plötu um framhjáhaldið og lagið „Madeline“ um viðhaldið en Tippett hefur gengist við því að vera títtnefnd Madeline.

Lífið
Fréttamynd

WestJet flýgur líka til Winnipeg og Edmonton

Kanadíska flugfélagið WestJet hefur bætt við tveimur nýjum kanadískum áfangastöðum við áætlun sína til Keflavíkurflugvallar sumarið 2026. Flogið verður einu sinni í viku frá Edmonton og Winnipeg frá 28. júní.

Viðskipti