Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna Berit Mueller skrifar 28. maí 2025 14:03 Í dag, 28. maí, er alþjóðlegur dagur tíðahreinleitis og tíðaheilbrigðis. Dagurinn var tilnefndur fyrir rúmum 10 árum, sérstaklega til að vekja athygli á erfiðri stöðu kvenna út um allan heim sem eiga ekki aðgang að tíðavörum og hreinlætisaðstöðu. Þrátt fyrir að u.þ.b. helmingur mannkyns fari reglulega á blæðingar stóran hluta ævinnar eru blæðingar enn þá hjúpaðar skömm og feimni. Tíðaheilbrigði eru mannréttindi og enn fremur lykilatriði í jafnrétti kynjanna. Einstaklingar sem eru fæddir með leg og fara reglulega á blæðingar - hér á eftir kallaðir túrverur - sem geta ekki útvegað sér tíðavörur vegna aðgengis eða fjárskorts missa af menntun eða vinnu og eiga þar af leiðandi enn erfiðara með að koma sér í fjárhagslegt öryggi til að tryggja aðgengi að hreinlætisvörum og -aðstöðum. Á Íslandi er staðan nokkuð góð, þökk sé framgöngu aktívista á síðustu árum sem skiluðu í sér lækkun virðisaukaskatts á tíðavörur og ókeypis aðgang að tíðavörum í mörgum skólum landsins. Blæðingaskömm fer lækkandi; ungar túrverur spyrja ókunnugan þjón eftir túrtappa, feður ræða um blæðingar við dæturnar, skömmin er mest sett til þeirra sem ætla að gera lítið úr blæðingum. Hvað varðar hreinlætisaðstöðu eiga langflestar túrverur hér á landi óhindraðan aðgang að vatni og salernum þegar þær þurfa á því að halda. Þessu undanskilið eru allar túrverur sem vinna í framkvæmdastörfum utan dýra og deila einu færanlegu klósetti með mörgum einstaklingum fæddum með lim. Flest klósett eru ekki með rennandi vatn, nægilegt pláss til að skipta um tíðavörur og ruslafötu til að ganga frá einnota tíðavörum. Þetta þrennt finnst hins vegar á vinnustöðum þeirra fjölmargra túrvera sem vinna í umönnunar- og þjónustustörfum innandyra. Salernin eru hrein (enda sjá þær oftast sjálfar um þrifin) þannig að skipta um túrvörur og að gæta hreinlæti er ekki vandamálið. Erfitt er hins vegar að finna tímann til að sinna þörfum líkamans þar sem flest þessara starfa fela í sér mönnunarvanda og eftirlitsskyldu. Það er nóg flókið á öðrum dögum í tíðahring, en þegar blæðingar standa yfir fer meðaltúrveran oftar og örlítið lengur á salernið. Sumir lesendur hugsa kannski núna, það yrði ekki stórt mál að bíða aðeins lengur þangað til tíminn gefst, en það er ekki alltaf hægt. Það er ekki hægt að skreppa úr samverustund þegar hinir kennararnir eru í verðskuldaðri pásu þótt kennaratúrveran hafi misst úr sér túrtappa með hnerra. Það er afar óþægilegt að aðstoða aleina manneskju með litla hreyfigetu og finna samtímis hvernig bindið losnar í brókinni og hreyfist lengra frá klofinu við hvert skref. Í ísbúðinni á sólskinsdegi með biðröðina út á gangstétt virðist ekki koma rétti tíminn til að geta hvíslað á bak við afgreiðsluborðið „heyrðu, ég þarf að skreppa á klósettið, það lekur fram úr bikarnum“. Þess í stað á að brosa, veita góða þjónustu og hunsa eigin þarfir. Tíðaheilbrigði er samt sem áður miklu meira en aðgengi að tíðavörum og hreinlætisaðstöðum. Það snýst enn fremur um þekkingu um blæðingar og eðlilegan tíðahring. Annars vegar er að ræða um fræðsla og rétta upplýsingagjöf til ungra túrvera, hins vegar er stór þáttur einnig vilja og áhuga til fræðilegra rannsókna um sjúkdóma í legi. Nýlega birtist áhugaverð rannsókn um bakteríusýkingar í leggöngum og árangur til lækningar þegar makinn með lim er sérstaklega meðhöndlaður. Það þarf fleiri rannsóknir og helst sem fyrst. Greiningartímínn fyrir t.d. endómetríósa er mörg ár og enn er ekki vitað nákvæmlega hvað orsakar endómetríósa og hvernig það er hægt að lækna hana. Þangað til það uppgötvast verða allt of margar túrverur upplifa reglulega sársaukafullar blæðingar. Margt annað um legið er einnig í huldu á meðan rangar fullyrðingar eru sífellt endurteknar. Eins og að egglosið er alltaf á 14. degi í tíðahringnum og að tíðahringurinn varir alltaf 28 daga. Egglosið verður þegar líkaminn er tilbúinn að huga að mögulegri þungun. Það getur verið á 14. degi tíðahrings, en líka á 11. degi eða 23. degi. Eðlilegt er að dagur egglosins breytist frá tíðahring til tíðahrings og þar með lengd tíðahrings. Eðlilegt er líka að langflestar túrverur víða um heim hafa ekkert val að fara á blæðingar, ekki meira val en þær hafa á skóstærð eða húðlit. Blæðingar og tíðaheilbrigði snertir samfélagið sem heild, hvort sem við viljum viðurkenna það eða ekki. Þess vegna er 28. maí, alþjóðlegur dagur tíðahreinleitis og tíðaheilbrigðis, líka mikilvægur dagur til vitundarvakningar á Íslandi. Hér er þegar margt á réttri leið en það er líka hægt að gera ennþá betra. Góð skilaboð yrði að afnema alla skatta á tíðavörur. Fyrir utan það þarf einnig að tryggja að túrverur í jaðarsettum hópum, t.d. búandi á götu eða í úrræðum fyrir einstaklinga um alþjóðlega vernd, eigi auðveldan aðgang að tíðavörum og öruggum salernum. Til lengri tíma ætti að efla læknisfræðilegar og þverfaglegar rannsóknir á sviði tíðaheilbrigðis. Ekki síst má hver og einn lesandi velta fyrir sér hvaða fordóma hann ber með sér gagnvart blóði, gagnvart skapsveiflum hjá túrverum og gagnvart sjálfum sér um að þurfa að harka af sér á meðan blæðingar standa yfir. Ég ætla að enda á fallegu ljóði eftir Ester Hilmarsdóttur því sama hversu leiðinlegt, erfitt og sársaukafullt það getur verið að fara á blæðingar, við skulum ekki gleyma hversu magnað líffæri legið er. FÖGNUM (Ester Hilmarsdóttir) Við skulum fagna þessum takti sem hreinsar burt og byggir upp á víxl í sífelldri hringrás. Þessu innra gangverki líkamans. Þessari flóknu lífsklukku sem ætti að fá færustu verkfræðinga heims til að falla á hnéin. Fögnum þessum hrynjanda. Þessari stórkostlegu sinfóníu sem kroppurinn semur til þess að skapa líf. Höfundur hefur mikinn áhuga á legi sem líffæri og sem áhrifavaldi í samfélagi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kvenheilsa Heilbrigðismál Jafnréttismál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar