Skoðun

Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum

Íris E. Gísladóttir skrifar

Enn einu sinni er menntakerfið komið í hringiðu pólitískra deilna. Nú snýst umræðan um nýjan einkunnakvarða, hvort hann sé til bóta og hvort ráðherra hafi sjálfur skilið breytingarnar.

Á meðan deilt er um hvernig við eigum að mæla námsárangur sitja kennarar og nemendur áfram uppi með sömu áskoranirnar.

Hvenær ætlum við að hætta að rífast um hvernig við mælum vandann og fara að leysa hann?

Við höfum vitað í áratugi hvað þarf að bæta. Of mörg íslensk börn ná ekki nauðsynlegri grunnfærni í lestri og stærðfræði. Kennarar glíma við mikið álag, aðgangur að sérfræðiþjónustu er misjafn og skortur á fjölbreyttum námsgögnum gerir þeim erfiðara fyrir að mæta ólíkum þörfum nemenda.

Í um þrjá áratugi hafa skýrslur, úttektir og starfshópar bent á veikleika í umgjörð skólastarfsins og lagt fram tillögur að úrbótum.

Samt virðist okkur ganga betur að endurskoða kerfin sem meta árangurinn en að tryggja aðstæðurnar sem þarf til að bæta hann.

Mælingar skila litlu ef við getum ekki brugðist við

Gott námsmat er mikilvægt. Það hjálpar kennurum að greina hvar nemendur standa og hvaða þætti þeir þurfa að styrkja. En upplýsingarnar eru aðeins gagnlegar ef við nýtum þær og getum brugðist við þeim.

Það er lítið gagn í því að greina að barn eigi í erfiðleikum með lestur ef kennarinn hefur hvorki tíma né viðeigandi námsgögn til að veita því þá þjálfun sem það þarf.

Án fjölbreyttra námsgagna, betri starfsaðstæðna kennara og aðgengilegrar sérfræðiþjónustu verður erfitt að snúa við neikvæðri þróun í námsárangri íslenskra barna.

Við getum ekki ætlast til þess að kennarar sinni sífellt fjölbreyttari þörfum nemenda og bregðist við niðurstöðum námsmats án þess að tryggja þeim nauðsynleg verkfæri og svigrúm.

Þrjátíu ára vanfjármögnun verður ekki leyst með einni fjárveitingu

Staða námsgagna er skýrt dæmi um hversu lengi nauðsynlegar úrbætur hafa setið á hakanum.

Samkvæmt skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna frá maí 2026 er raunvirði fjármögnunar námsgagna á hvern nemanda aðeins um 30% af því sem það var árið 1991.

Það er því fagnaðarefni að stjórnvöld hafi tryggt 380 milljóna króna aukningu til námsgagna. En eftir áratuga vanfjármögnun skiptir miklu hvernig fjármununum verður varið.

Nýtt kjarnanámsefni kemur ekki í stað fjölbreytni

Í drögum að nýrri aðgerðaráætlun menntastefnu er meðal annars lögð áhersla á heildstætt kjarnanámsefni í stærðfræði, nýtt lestrarefni, námsefni í náttúrugreinum og stafræna námsgagnaveitu.

Þetta eru jákvæð skref. En nýtt kjarnanámsefni kemur ekki í stað fjölbreytni.

Börn læra á ólíkan hátt og þurfa mismikinn stuðning. Eitt námsefni, hversu vandað sem það er, getur ekki mætt öllum þeim þörfum.

Kennarar þurfa fjölbreytt námsgögn, sérhæft stuðningsefni og tíma til að nýta þessi verkfæri í stað þess að verja stórum hluta undirbúningstímans í að útbúa þau sjálfir.

Börnin okkar geta ekki beðið í önnur þrjátíu ár

Í drögum að nýrri aðgerðaráætlun er sett það markmið að 80% barna sem ekki ná grunnhæfni samkvæmt Matsferli fái viðeigandi stuðning innan átta vikna.

Það er mikilvægt markmið. En það eitt að greina vandann fyrr tryggir ekki að hægt sé að leysa hann.

Hefur kennarinn tíma til að grípa inn í? Hefur hann aðgang að námsefni sem hentar barninu? Er sérfræðiþjónusta tiltæk þegar hennar er þörf?

Markmiðum stjórnvalda verða að fylgja raunveruleg úrræði. Annars erum við aðeins að skrásetja vandann af meiri nákvæmni.

Við höfum breytt námskrám, námsmati og viðmiðum aftur og aftur. Sumar breytingar hafa verið nauðsynlegar og aðrar til bóta. En þær hafa ekki leyst þann vanda sem kennarar hafa bent á árum saman.

Vilji stjórnvöld sjá umbyltingu í námsárangri þurfa þau að forgangsraða fjölbreyttum námsgögnum, bættum starfsaðstæðum kennara og aðgengi að sérfræðiþjónustu. Ekki aðeins í stefnum og aðgerðaráætlunum, heldur í fjárveitingum og raunverulegum breytingum á skólastarfi.

Við höfum ekki efni á að bíða eftir enn einni kynslóð af niðurstöðum sem staðfesta það sem við vitum nú þegar.

Börnin okkar þurfa ekki fleiri pólitískar deilur um stefnur og einkunnakvarða. Þau þurfa menntakerfi sem veitir kennurum raunverulegar forsendur til að bæta námsárangur þeirra.

Höfundur er formaður Þróunarsjóðs námsgagna




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×