Innlent

Hafna á­sökunum á hendur Gunnari Smára

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
María, Sara og Sanna eru formenn stjórna Sósíalistaflokksins.
María, Sara og Sanna eru formenn stjórna Sósíalistaflokksins. Sósíalistaflokkurinn/Golli/Vilhelm

„Við höfnum ásökunum Karls Héðins Kristjánssonar, sem birti í dag póst um afsögn sína úr kosningastjórn flokksins síðastliðna helgi, um að „hunsa lýðræðislega gagnrýni, viðhalda óheilbrigðri menningu og refsa þeim sem benda á vandamálin.“

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, formanns kosningastjórnar Sósíalistaflokksins, Söru Stef. Hildardóttur, varaformanns, framkvæmdastjórnar flokksins og Maríu Pétursdóttur, formanns málefnastjórnar flokksins í Facebook hóp Sósíalistaflokksins. 

Karl Héðinn Kristjánsson, forseti ungra Sósíalista, greindi frá því í dag að hann hefði sagt sig úr kosningastjórn flokksins. Hann sagðist útskúfaður fyrir að segja sannleikann um „ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot“ Gunnars Smára Egilssonar, formanns framkvæmdastjórnar flokksins.

„Ég get ekki lengur starfað innan forystu sem hunsar lýðræðislega gagnrýni, viðheldur óheilbrigðri menningu og refsar þeim sem benda á vandamálin,“ sagði hann meðal annars. Gunnar Smári boðaði til skyndifundar í kvöld vegna málsins. 

Fram kemur í yfirlýsingu Sönnu, Söru og Maríu að flokkurinn hafi nýverið sent út könnun meðal félaga um ánægju þeirra með flokksstarfið, stefnuna og þau áhrif sem flokkurinn hafi haft á samfélagsumræðu síðastliðin ár. 

„Almenn ánægja þeirra 15% félaga sem svöruðu var yfir 90% í öllum spurningum nema um niðurstöður kosninganna. Vinnufundur kosningarstjórnar, sem Karl Héðinn vísar til, sátu 1,5% félaga.

Niðurstöður félagskönnunarinnar sýna því að almenn ánægja ríkir um starf Sósíalistaflokksins og endurspegla engan veginn vantraust á formann framkvæmdastjórnar, Gunnar Smára Egilsson.“

Sósíalistaflokkur Íslands sé breiðfylking fólks sem byggir á grasrótarstarfi og lýðræðislegum vinnubrögðum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×