Ekki meira en 350 grömm af rauðu kjöti á viku og sem minnst af sykri Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. mars 2025 11:44 Fæðuhringurinn samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis. Fram kom á fundinum að ráðleggingarnar byggðu á afar traustum vísindalegum grunni. Embætti landlæknis Íslendingar ættu að takmarka neyslu sína á rauðu kjöti við 350 grömm á viku og neyslu mjólkur og mjólkurvara við 350 til 500 ml á dag. Þá ættu þeir að borða fimm til átta skammta af grænmeti og ávöxtum á dag og þrjá skammta af heilkornum.
Þetta eru nýjar ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði en þær byggja fyrst og fremst á norrænum næringarráðleggingum, viðmiðunargildum fyrir orku og næringarefni sem birt voru í júlí í fyrra og niðurstöðum landskönnunar á matarræði Íslendinga. Ráðleggingarnar voru kynntar á fundi í morgun en þar var ítrekað að þær byggðu á afar traustum vísindalegum grunni. Alma Möller heilbrigðisráðherra hóf fundinn á því að bjóða eftirmann sinn hjá embættinu, Maríu Heimisdóttur, velkomna. Þá sagði hún mataræði ekki aðeins skipta máli hvað varðaði líkamlega og andlega heilsu, heldur einnig lífsgæðin. Ráðherra sagði mikilvægt að horfa til barnanna og muna að þau gerðu eins og við gerðum, ekki bara eins og við segðum. Þá væri afar mikilvægt að holl matvara yrði aðgengilegri og ódýrari. Minna kjöt, mettaða fitu, salt og sykur Ráðleggingarnar hafa tekið nokkrum breytingum frá því að Manneldisráð gaf síðast út ráðleggingar árið 2014 en þá var kveðið á um að takmarka neyslu á rauðu kjöti við 500 grömm á viku, mjólk og mjólkurvörur við 500 ml á dag og mælt með neyslu fimm skammta af ávöxtum og grænmeti daglega. Þá er í fyrsta sinn fjallað um áfengi, orkudrykki, kaffi og te og baunir, ertur og linsur flokkaðar með próteingjöfum í stað grænmetis og ávaxta. Ráðleggingarnar hafa breyst nokkuð og þá er í fyrsta sinn fjallað um áfengi og orkudrykki.Embætti landlæknis „Mælt er með mataræði sem byggir að mestu á mat úr jurtaríkinu og er ríkt af grænmeti, ávöxtum, berjum, baunum, ertum, linsum, kartöflum og heilkornavöru,“ segir í kynningu um ráðleggingarnar. Þá er mælt með því að borða fisk og hnetur og nota jurtaolíu við framleiðslu. „Takmarka ætti eða sleppa neyslu á unnum kjötvörum, áfengi og matvælum sem innihalda mikið af fitu, salti og sykri. Gott er að gefa sér góðan tíma til að njóta matarins og borða með athygli, án áreitis.“ Mikilvægt að neyta D-vítamíns María Heimisdóttir, nýr landlæknir, sagði að það að stuðla að góðri næringu væri ein mikilvægasta aðgerðin í lýðheilsumálum sem hægt væri að ráðast í. Hún sagði ráðleggingarnar byggja á alþjóðlegum vísindaniðurstöðum en einnig aðstæðum hér á landi. Ráðleggingarnar væru ætlaðar til að stuða að betri heilsu og koma í veg fyrir sjúkdóma á borð við hjartasjúkdóma og krabbamein. Þær hefðu mikið lýðheilsugildi og ef almenningur tileinkaði sér þær að miklu leyti væri hægt að draga úr sjúkdómum og auka lífslíkur. Það væri stundum erfitt að borða fjölbreytt en markmiðið væri að borða hollt heilt yfir. Það skipti minna máli hvað maður borðaði milli jóla og nýárs en það sem maður borðaði á milli nýárs og jóla, sagði hún í gamni. Á þessu grafi má bersýnilega sjá hvernig óhollt mataræði getur haft áhrif á heilsu og lífsgæði fólks.Embætti landlæknis Mælt er með því að fólk borði fisk sem máltíð tvisvar til þrisvar í viku og einnig sem álegg. Þá sé hollt að neyta bauna, erta og linsa að minnsta kosti einu sinni í viku. Fólki er ráðlagt að velja fituminni og helst sýrðar mjólkurvörur og halda sig frá mjólkurvörum sem innihalda sykur eða sætuefni. Jurtaolía og önnur mjúk fita en sögð mun ákjósanlegri en hörð fita á borð við smjörva og smjörlíki. D-vítamín ættu allir að taka sem bætiefni, auk þess sem ráðlegt sé að borða feitan fisk að minnsta kosti einu sinni í viku. „Sælgæti, snakk, kökur, kex, ís, sætir drykkir og aðrar fæðutegundir sem innihalda mikið af sykri, salti og/eða mettaðri fitu er ráðlagt að takmarka. Ráðlagt er að takmarka eða sleppa drykkjum með sykri eða sætuefnum svo sem gosi, orkudrykkjum, íste og safa,“ segir í kynningunni. Þá sé mælt með að saltneysla fari ekki yfir sex grömm á dag og ítrekað að engin örugg mörk séu til hvað varðar áfengisneyslu, sem auki líkurnar á krabbameinum í meltingarvegi og brjóstum.
Heilbrigðismál Matvælaframleiðsla Matvöruverslun Neytendur Embætti landlæknis Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Sjá meira