Lífið

Ís­raelar þekkja Euro­vision-stuld betur en aðrir

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hin ísraelska Netta með Eurovision-bikarinn eftir sigur í Portúgal árið 2018. Aukahöfundur bættist við lagahöfundalista lagsins ári eftir keppnina vegna meints stuldurs.
Hin ísraelska Netta með Eurovision-bikarinn eftir sigur í Portúgal árið 2018. Aukahöfundur bættist við lagahöfundalista lagsins ári eftir keppnina vegna meints stuldurs. Getty/Pedro Fiúza

Ísraelskur lagahöfundur hefur kvartað yfir meintum þjófnaði sigurvegara Söngvakeppni sjónvarpsins. Hann krefst þess að lagið verði dæmt úr keppni eða að hann verði titlaður lagahöfundur. Flytjendur sigurlagsins segjast aldrei hafa heyrt lagið áður. Ísraelar hafa áður verið sakaðir um að stela lagi fyrir Eurovision.

Bræðurnir Í Væb unnu Söngvakeppni sjónvarpsins á laugardaginn og verða fulltrúar Íslands í Eurovision-söngvakeppninni í Basel í Sviss. Sigurlag þeirra, Róa, hefur verið milli tannanna á fólki síðustu daga og þeir sakaðir um stuld. Lagið þykir afar líkt ísraelska popplaginu Hatunat Hashana. 

Hægt er að heyra bæði lögin í klippunni hér fyrir neðan.

Bræðurnir svöruðu fyrir ásakanirnar fyrir rúmum mánuði. Þeir sögðust aldrei hafa heyrt þetta lag, enda stundi þeir það ekki að hlusta á ísraelska popptónlist.

Það dró svo til tíðinda í dag þegar höfundur Hatunat Hashana steig fram og sagðist ætla að senda viðvöruBræðurnir Í Væb unnu Söngvakeppni sjónvarpsins á laugardaginn og verða fulltrúar Íslands í Eurovision-söngvakeppninni í Basel í Sviss.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem íslenskt framlag er sagt stolið. Í fyrra urðu líkindi framlags Heru Bjarkar og lagsins Sorry Not Sorry með Demi Lovato að fréttaefni.

Fjölmörg fleiri erlend atriði hafa verið sökuð þjófnað. Frægasta dæmið er líklega einmitt ísraelska lagið Toy með Netta sem vann keppnina 2018. Laglínan þótti allt of líkinu hinu gríðarvinsæla lagi Seven Nation Army með the White Stripes frá 2003. Eftir sigur Ísraels í keppninni var kvartað yfir líkindunum. Leikar enduðu þannig að höfundur Seven Nation Army, Jack White, er nú titlaður höfundur Toy, án þess að hafa heyrt lagið fyrr en eftir sigurinn. 


Tengdar fréttir

Meintur stuldur á borð RÚV

Líkindi framlags VÆB bræðra í Söngvakeppninni við ísraelskt popplag eru til skoðunar hjá stjórn Söngvakeppninnar. Þetta staðfestir Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri keppninnar. Reglur keppninnar kveði á um að lög megi ekki hafa verið flutt áður. Bræðurnir koma af fjöllum og segjast ekki leggja í vana sinn að hlusta á ísraelska popptónlist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.