Fótbolti

Há­kon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“

Aron Guðmundsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður Lille í Frakklandi 
Hákon Arnar Haraldsson, leikmaður Lille í Frakklandi  MB Media/Getty Images

Há­kon Arnar Haralds­son hefur fengið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína með franska liðinu Lil­le í bestu deild Evrópu. Há­kon er orðaður við mörg stór­lið í álfunni en lætur sjálfur sögu­sagnirnar ekki hafa áhrif á sig og ein­blínir fremur á það að gera betur, stefna hærra.

Lil­le, með Há­kon Arnar í farar­broddi fór á kostum í fyrra­dag gegn Feyenoord í loka­um­ferð deildar­keppni Meistara­deildar Evrópu þar sem að franska liðið gjör­sam­lega valtaði yfir hollenska liðið. 6-1.

„Ég held að þetta sé minn stærsti sigur á ferlinum. Maður bjóst ekki alveg við þessu. Bæði lið með jafn­mörg stig og svo vinnum við þá bara 6-1,“ segir Há­kon en sigurinn tryggði Lil­le sæti á meðal átta efstu liða Meistara­deildarinnar, sæti sem veitir beinan þátt­tökurétt í 16-liða úr­slitum Meistara­deildarinnar og sleppur Lil­le því við ein­vígi í um­spili um sæti í 16-liða úr­slitunum. Það er stórt

„Já ansi stórt og gríðar­lega mikilvægt upp á álagið. Sleppum við tvo hörku leiki og fáum smá frí. Þetta hefur verið al­vöru keyrsla þetta árið, síðan að 2025 byrjaði. Þetta er geggjað. Bæði upp á það að fara beint áfram en einnig álagið.“

Alvöru upplifun

Og árangurinn er yfir settu marki Lil­le í Meistara­deildinni fyrir deildar­keppnina.

„Ef ég á að vera hrein­skilinn þá er hann það já. Ég held það hafi enginn búist við því að við myndum enda í 7.sæti í deild með bestu liðum í Evrópu. Ofar en lið á borð við Real Madrid, Manchester City og Bayern Munchen og Dort­mund, öll þessi lið. Já þetta er hrika­lega vel gert hjá okkur.“

Há­kon Arnar minnti ræki­lega á sig í Meistara­deildinni gegn Liver­pool á Anfi­eld á dögunum, nýráðinn lands­liðsþjálfari Ís­lands, Arnar Gunn­laugs­son var þar á meðal áhorf­enda.

Hákon Arnar í leiknum gegn Liverpool á AnfieldEPA-EFE/ADAM VAUGHAN

„Það var mjög sér­stakt að spila þarna. Maður hefur horft á nóg af leikjum í ensku úr­vals­deildinni frá þessum velli og alltaf dreymt um að spila á svona stórum og sögu­legum völlum. Það var alveg al­vöru upp­lifun.“

Og það hlýtur að hafa verið ein­mitt sér­stak að skila svona frammistöðu af sér þarna þrátt fyrir tap?

„Já svo sannar­lega á móti svona sterku liði, á þeirra heima­velli, í bestu keppni í heimi. Þá er alltaf gaman að geta sýnt hvað maður getur, þótt við höfum tapað. Mér fannst við jafn­vel hafa átt skilið stig úr þessum leik.“

Búinn að fórna helling

Mánuðirnir sem Há­kon Arnar var fjar­verandi vegna bein­brots í fæti fyrr á tíma­bilinu virðast nú ansi langt frá þegar að litið er í baksýnis­spegilinn.

Ég er búinn að vera standa mig vel. Ég er ein­hvern veginn ferskur eftir að hafa komið til baka úr þessum meiðslum. Þetta voru löng meiðsli og maður er alltaf mjög spenntur að komast aftur út á völl eftir að hafa verið svona lengi frá. Mér finnst við bara koma mjög vel út úr þessu.“

Hákon Arnar Haraldsson á Wembley með íslenska landsliðinuGetty/Bradley Collyer

En mánuðirnir utan vallar voru krefjandi.

„Mjög langur og erfiður tími. Það gekk vel í byrjun hjá mér og liðinu á tíma­bilinu. Við fórum náttúru­lega í gegnum for­keppni Meistara­deildarinnar og ég var að fara í lands­liðs­verk­efni þegar að þetta gerist. Þetta var mikið högg. And­lega erfitt. Ég fékk aðeins að fara heim, það hjálpaði helling að vera heima með fjöl­skyldunni og vinum en svo þurfti maður bara að vinna að því að komast til baka. Þannig er þetta bara. Erfitt en ég kom mér í gegnum þetta.“

Því staðan sem Há­kon er í dúkkar ekki bara upp af sjálfu sér.

„Maður er hérna úti til að spila fót­bolta. Ég er búinn að fórna helling til þess að komast á þennan stað. Hef verið mikið einn og svo við tvö, ég og kærastan mín, hérna úti. Það hjálpaði helling að komast heim þegar að maður gat ekki gert það sem að manni finnst skemmti­legast.“

Franskan erfiður hjallur að komast yfir

Skagamaðurinn var keyptur til Lil­le frá danska stór­veldinu FC Kaup­manna­höfn sumarið 2023 og í Frakk­landi líður Há­koni ósköp vel en á þó erfitt með að ná valdi á frönskunni.

„Það gengur ekki alveg nógu vel með tungumálið. Það er mjög erfitt. Ég reyndi fyrsta árið en það gekk eigin­lega ekkert. Ég skil aðal­lega fót­bolta frönskuna en er ekki mikið úti í borginni, er mest­megnis heima og er því ekkert inn úti sam­félaginu þannig séð. Bara heima eða úti á velli.“

Hákoni líður vel í FrakklandiGetty/Catherine Steenkeste

Há­kon þurfti að aðlagast franska boltanum við komuna til Lil­le því hann er tölu­vert frábrugðinn þeim danska.

„Þar er kannski bara aðal­lega líkam­legi styrkur leik­manna sem er mun meiri hér. Það er mikið af stórum, sterkum og hröðum leik­mönnum. Hraðinn á mönnum er líka meiri sem og tempóið í spilinu. Sem er skiljan­legt. Það er helling af góðum liðum hérna. Þetta er mjög jöfn deild.

Ég hef þurft að vera dug­legri í ræktinni. Það er ekki minn upp­áhalds staður en ég þurfti að vinna í því. Og hef gert það. Maður venst tempóinu hér, bæði með því að æfa og spila á hærra tempói leik eftir leik og fær þá til­finningu fyrir því hvenær maður getur snúið á leik­menn eða þarf spila einnar eða tveggja snertinga fót­bolta.“

Kemst ekki hjá því að heyra af áhuga

Lil­le er í 5.sæti frönsku deildarinnar og ætti að vera ofar að mati Há­konar en hann segir liðið hafa gert sér lífið leitt í mörgum leikjum með því að glutra niður for­ystu undir lok þeirra. Frammistaða hans á tíma­bilinu hafa hins vegar vakið tölu­verða at­hygli og það út fyrir Frakk­land.

Lið á borð við Manchester United, Totten­ham og New­cast­le United eru sögð fylgjast grannt með Skaga­manninum unga og hann kemst ekki hjá því að heyra af þessum sögusögnum en gefur þeim lítinn gaum á sama tíma.

„Já ég geri það (verður var um orðrómana) því vinir mínir senda mér línu um það á sam­félags­miðlum. Ég kemst ekkert upp með að komast fram hjá þessu,“ segir Há­kon hlæjandi. „Þeir eru alltaf mættir strax að spyrja mig hvort þetta sé satt eða eitt­hvað svo­leiðis. Ég fylgist því alveg með um­ræðunni en það þýðir ekkert að láta hana hafa áhrif á sig.“

„Það er alveg næs að heyra af áhuga en maður veit ekkert hvað er satt í þessu. Aggi, um­boðs­maður minn, er bara með þessi mál á sinni könnu, vinnur sína vinnu og er ekkert að pota í mig og segja mér frá því hvaða lið hafa áhuga. Það myndi bara fara að trufla mig ef hann gerði það. Hann sér bara um þetta.“

„Maður ætti kannski að njóta meira“

En eins og áður segir er Há­kon sáttur í Frakk­landi.

„Mér finnst ég hafa valið rétt lið fyrir mig. Lið með góðan leikstíl og ég hef fengið að spila helling. Þetta er frábært félag og ég er mjög sáttur með allt hérna.“

Tuttugu og eins árs gamall spilar hann í tveimur af stærstu deildum Evrópu og þótt víða væri leitað. Það var draumur Há­kons í æsku að spila fót­bolta á hæsta stigi en gefur hans sér tíma til þess að staldra við, átta sig á sinni stöðu og hvert hann er kominn á sínum ferli?

„Þegar að þú segir þetta ætti maður kannski aðeins að njóta meira. Þetta er orðið normið ein­hvern veginn. Ekki á Anfi­eld samt gegn Liver­pool, maður finnur alveg fyrir því að maður er spenntari fyrir þannig leikjum og krakkinn í manni er mjög glaður. Ég á langt eftir en það er gott að vera kominn svona langt hingað. Ég stefni bara á meira, enn hærra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×