Innlent

Lenti á Ís­landi eftir fæðingu í há­loftunum

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Flugvélin nauðlenti í Keflavík eftir að kona hafði fætt barn um borð á flugi yfir Grænlandi.
Flugvélin nauðlenti í Keflavík eftir að kona hafði fætt barn um borð á flugi yfir Grænlandi. Brunavarnir Suðurnesja

Flugvél frá úsbeksku flugfélagi lenti á Keflavíkurflugvelli í dag eftir að kona hafði fætt barn í vélinni þegar hún var á flugi yfir Grænlandi. Móðir og barn voru flutt á sjúkrahús til aðhlynningar, og heilsast báðum vel.

Frá þessu greina Brunavarnir Suðurnesja og rússneski miðillinn Tass.

Fram kemur hjá Tass að flugvélin hafi verið á leið frá Taskent í Úsbekistan til New York í Bandaríkjunum þegar kona um borð fékk hríðir, og fæddi svo dreng nokkru síðar.

Um borð hafi verið skurðlæknir og ljósmóðir sem aðstoðuðu við fæðinguna.

Í tilkynningu Brunavarna Suðurnesja segir að ljósmóðir og sjúkraflutningarmenn hafi verið sendir á staðinn og flutt fólkið til aðhlynningar. Drengurinn hafi verið fyrirburi en bæði móður og barni heilsist vel.

Sjúkraflutningamenn biðu komu flugvélarinnar.Brunavarnir Suðurnesja



Fleiri fréttir

Sjá meira


×