66 látnir í bruna á tyrknesku skíðahóteli Atli Ísleifsson skrifar 21. janúar 2025 07:41 Frá vettvangi brunans í nótt. AP Að minnsta kosti 66 eru látnir og á sjötta tug slasaðir eftir að eldur kom upp á skíðahóteli í tyrkneska bænum Kartalkaya í norðvesturhluta landsins í nótt.
Talsmaður tyrkneskra yfirvalda segir að eldurinn hafi komið upp á veitingastað skíðahótelsins. Samkvæmt fyrstu fréttum var tilkynnt að sex væri látnir og að á fjórða tug hefðu slasast í brunanum, en skömmu síðar var tala látinna hækkuð í tíu og svo 66. Í tyrkneskum fjölmiðlum segir að tveir hið minnsta hafi látist eftir að hafa stokkið út um glugga úr brennandi húsinu. Frá vettvangi eftir að birta tók.EPA Ekki liggur fyrir um upptök eldsins, en 234 gestir voru á hótelinu þegar eldurinn kom upp. Á myndum mátti sjá eld og reyk leggja frá efstu hæðum hótelsins. Kartalkaya er vinsæll skíðabær í Koroglu-fjöllunum í Bolu-héraði í norðvesturhluta Tyrklands, um þrjú hundruð kílómetrum frá Istanbul. Fjölmargir Tyrkir eru í fríi á þessum tíma árs þar sem vetrarfrí er í skólum og hótel mörg hver fullbókuð. Fréttin hefur verið uppfærð.
Tyrkland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira