Tyrkland

Tyrkland

Höfuðborg: Ankara. Mannfjöldi: 87,5 milljónir (2025). Flatarmál: 783.356 ferkílómetrar.

Fréttamynd

NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu

Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Krist­rún og Þor­gerður á NATO-fundinum í Ankara

Aukin framlög til varnarmála, jafnari skipting byrða og stuðningur við Úkraínu er talinn verða í forgrunni á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.

Innlent
Fréttamynd

NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft á réttu að standa í gagnrýni sinni á evrópsk bandalagsríki og með því að ráðast á Íran. Hann segir að sér líki vel við forsetann.

Erlent
Fréttamynd

Tyrkir vilja sendi­ráð á Ís­landi

Á símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi sá síðarnefndi frá að Tyrkir hyggjast koma á fót sendiráði hér á Íslandi. 

Innlent
Fréttamynd

Mót­mæla og biðla til utan­ríkis­ráð­herra

Samfélag Kúrda á Íslandi hefur boðað til mótmæla í dag og krefst tafarlausrar aðgerða vegna alvarlegrar stöðu Kúrda í Sýrlandi og Tyrklandi. Talsmaður hópsins segir kallar eftir því að utanríkisráðherra beiti sér fyrir vopnahléi.

Innlent
Fréttamynd

Þrír lög­reglu­þjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir á­tök í Tyrk­landi

Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og sex vígamenn Íslamska ríkisins liggja í valnum eftir bardaga þeirra á milli í Tyrklandi í morgun. Átta lögregluþjónar og öryggisvörður eru særðir eftir átökin, sem áttu sér stað í Elmali, suður af Istanbul. Lögregluþjónar eru sagðir hafa gert áhlaup á hús þar sem vígamennirnir héldu til.

Erlent
Fréttamynd

Bíða enn eftir tæpri milljón í endur­greiðslu eftir fall Play

Jón Marinó Birgisson og Herdís Rós Kjartansdóttir bókuðu golfferð hjá Eagle golfferðum sem ekki var farið í vegna falls Play. Þau segja fyrirtækið ítrekað hafa tilkynnt að það sé verið að vinna í málinu en þau hafa enn ekki fengið neitt endurgreitt. Alls ætluðu þau að fara tólf saman til að halda upp á afmæli eins fjölskyldumeðlims. Fyrirtækið segir fall Play hafa sett starfsemi í uppnám en ítrekar að endurgreiðsluréttur sé tryggður. 

Neytendur
Fréttamynd

Tchéky Karyo látinn

Tyrkneski leikarinn Tchéky Karyo er látinn 72 ára að aldri. Fjölskylda Karyo greinir frá andláti hans, en banamein hans mun hafa verið krabbamein.

Lífið
Fréttamynd

Magga Stína í flugi á leið til Istanbúl

Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, er nú laus úr haldi Ísraela og á leið til Istanbúl í Tyrklandi. Þaðan mun hún fljúga til Amsterdam í Hollandi þar sem hún mun hitta Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur, dóttur sína. Þar mun hún hvíla sig í nokkra daga áður en hún heldur heim til Íslands. 

Innlent
Fréttamynd

Héldu vöku fyrir leik­mönnum Liverpool

Stuðningsmenn Galatasaray í Tyrklandi vöktu frameftir í von um að trufla svefn leikmanna Liverpool sem gistu á hóteli í Istanbúl í nótt. Liðin eigast við í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Hár­prúður Eiður heillar

Þykkt hár Eiðs Smára Guðjohnsen í nýrri auglýsingu fyrir veðmálasíðuna Epicbet hefur vakið athygli. Stutt er síðan hár hans var farið að þynnast ansi mikið. Eiður hefur ekki tjáð sig um það sjálfur en virðist hafa farið í hárígræðslu.

Lífið
Fréttamynd

Borgar­stjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi

Borgarstjóri Istanbúl og einn helsti andstæðingur Tyrklandsforseta hefur verið dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir að móðga og hóta saksóknara ríkisins. Hann hefur verið í haldi lögreglu í um fjóra mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Sænskur glæpa­foringi tekinn fastur í Tyrk­landi

Tyrkneska lögreglan handtók Ismail Abdo, sænskan glæpaforingja, í umfangsmiklum aðgerðum gegn glæpagengjum á fimm stöðum í landinu. Sænsk yfirvöld hafa viljað hafa hendur í hári Abdo eftir gengjastríð sem stigmagnaðist fyrir tveimur árum.

Erlent