Viðskipti innlent

Ráðinn nýr fram­kvæmda­stjóri Domino's á Ís­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Steinar B. Sigurðsson.
Steinar B. Sigurðsson.

Steinar B. Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Domino’s Pizza á Íslandi. Hann tekur við af Magnúsi Hafliðasyni, sem hefur leitt félagið frá árinu 2021 og var á dögunum ráðinn framkvæmdastjóri N1.

Í tilkynningu segir að Steinar sé ekki ókunnur félaginu eða vörumerkinu, en hann hafi hafið störf árið 2006 sem framleiðslustjóri. 

„Undanfarin ár hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og innkaupa ásamt því að koma að stefnumótun og eiga sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Steinar er bakarameistari að mennt og er auk þess með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann mun taka formlega við starfinu á næstu vikum.“

Haft er eftir Steinari að hann sé afar þakklátur fyrir það traust sem honum sé sýnt með þessari ráðningu. „Það er mér sérstakt gleðiefni að fá tækifæri til að hlúa áfram að þeirri einstöku menningu sem við höfum skapað hjá Domino’s með öllu því frábæra starfsfólki sem ég þekki svo vel og ber mikla virðingu fyrir.

Ég bý vel að því að hafa tekið þátt í stefnumótun og ákvarðanatöku síðastliðin ár ásamt því að vinna náið með öðrum stjórnendum og þá ekki síst Magnúsi. Ég lít því björtum augum til framtíðar og hlakka til þeirrar áskorunar að tryggja áfram stöðu Domino’s sem eitt sterkasta vörumerkið á íslenskum veitingamarkaði.“ segir Steinar.

Þá er haft eftir Birgi Bieltvedt, stjórnarformanni Domino’s á Íslandi, að félagið þakki Magnúsi vel unnin störf síðustu ár og þau hartnær 20 ár sem hann hafi starfað fyrir vörumerkið, bæði hér á landi og erlendis. „Á sama tíma bjóðum við Steinar velkominn í nýtt hlutverk. Hann þekkir félagið og reksturinn vel, enda meðal reynslumestu stjórnenda þess og verið ábyrgur m.a. fyrir framleiðslu og vöruþróun í 12 ár ásamt því að hafa setið í framkvæmdastjórn félagsins. Steinar er bakari að mennt og starfaði sem slíkur áður en hann réði sig til Domino’s og þekkir því betur en flestir mikilvægi vörugæða og stöðugleika.“


Tengdar fréttir

Forstjóri Dominos til N1

Magnús Hafliðason, sem hefur verið forstjóri Dominos á Íslandi undanfarin ár hefur verið ráðinn forstjóri N1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×