Innlent

Á­stand mannsins mjög al­var­legt

Atli Ísleifsson skrifar
Frá aðgerðum viðbragðsaðila við Ægisgarð í gær.
Frá aðgerðum viðbragðsaðila við Ægisgarð í gær. Vísir/Anton Brink

Einn karlmaður var í bílnum sem fór út af bryggjunni á Ægisgarði í Reykjavík og í höfnina eftir hádegið í gær. Ástand mannsins er sagt mjög alvarlegt en hann var fluttur á Landspítalann eftir að tókst að koma honum úr bílnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að kafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafi fundið manninn og náð að koma honum upp úr sjónum. Hann hafi þá verið meðvitundarlaus. 

„Strax voru hafnar endurlífgunartilraunir og í framhaldinu var maðurinn fluttur á Landspítalann. Ástand hans er mjög alvarlegt.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið,“ segir í tilkynningunni.

Vísir/Anton Brink

Tengdar fréttir

Kafarar sóttu mann úr bíl sem fór í höfnina

Nærri allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu, auk björgunarkafara, var kallað út eftir að tilkynning barst um að bíll hafi farið í sjóinn við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×