Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos á Íslandi staðfestir í samtali við Vísi að verðið hafi verið hækkað í dag. Það var fyrst hækkað í október árið 2021 eftir að hafa verið sléttar eitt þúsund krónur í rúman áratug.
Þá var það hækkað um hundrað krónur, svo um aðrar hundrað krónur í janúar í fyrra og upp í 1.300 krónur í desember sama ár. Nú er stökkið 200 krónur upp í 1.500 krónur, sem gerir hækkunina á þremur árum fimmtíu prósent.
Ætti í raun að vera talsvert dýrara
Magnús segir að ástæðan fyrir verðhækkuninni nú sé uppsöfnuð staða. Þriðjudagstilboðið hafi í gegnum árin ekki fylgt verðlagi en undanfarið hafi hallað mjög á kostnaðarhliðina. Tilboðið ætti að standa í 1.800 krónum í dag miðað við verðlagsþróun.
„Þannig að það hefur í raun og veru aldrei verið ódýrara. En það er eðlilegt að fólk horfi í fasta krónutölu, við erum vön því að fá viðbrögð og það er eðlilegt. Þrátt fyrir að fólk skynji að verðbólgan hafi eitthvað hjaðnað milli ára núna, þá höfum við fengið á síðustu tólf mánuðum, og vitum að fram undan eru, talsverðar hækkanir á kostnaði. Bæði í launamálum tengt kjarasamningum en ekki síður frá okkar birgjum, sem dæmi hækkaði ostur núna frá MS 1. desember, sem vegur þungt í okkar rekstri.“
Fleira hækkar í verði
Þá segir Magnús að fleira á verðskrá Dominos hafi verið hækkað í dag. Hækkanir birtist helst í allra ódýrustu tilboðunum, þriðjudagstilboði og pitsu með tveimur áleggstegundum til að mynda. Pitsur á matseðli og gosdrykkir standi í stað. Vegin meðaltalshækkun sé rétt um þrjú prósent.
Engin ákvörðun hafi verið tekin um verð í svokallaðri megaviku, vinsælustu tilboðsviku Dominos. Í megaviku kostar stór pitsa á matseðli 1.890 krónur en kostaði lengi vel 1.590 krónur. Hækkun á verðinu í megaviku hefur hingað til fylgt hækkun þriðjudagstilboðs ágætlega.
Hvetur fólk til þess að gera verðsamanburð
Magnús segir að lokum að þriðjudagstilboð sé eftir sem áður einhver besti díllinn í bænum.
„Ef fólk er að hugsa um peninginn þá er margt vitlausara en að fá sé pitsu á góðu verði í kvöldmatinn. Við hvetjum fólk til að gera verðsamanburð. Því miður þá er þetta umhverfið sem við búum við, það hefur allt hækkað, matvaran hefur hækkað og það finna þetta allir. Við reynum eftir fremsta megni að halda verði niðri en það kemur að þeim tímapunkti að við verðum að hreyfa okkur.“