Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Árni Sæberg skrifar 26. nóvember 2024 17:04 Edda Rut, til vinstri, og Harpa Hödd, til hægri. Eimskip Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri innanlandssviðs hjá Eimskip. Harpa Hödd Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs í stað Eddu Rutar.
Í tilkynningu þess efnis á vef Eimskips segir að innanlandssviði tilheyri innanlandsflutningar, vörudreifing, starfsemi vöruhúsa og frystigeymslna ásamt fasteignaumsjón. Þá heyri dótturfyrirtækið Sæferðir einnig undir sviðið. Á sviðinu starfi um 400 starfsmenn á átján starfsstöðvum víðsvegar um landið. Edda hafi hafið störf sem markaðs- og samskiptastjóri Eimskips árið 2019 en hafi verið framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs félagsins frá árinu 2020. Þar áður hafi hún starfað hjá Íslandsbanka í tólf ár í ýmsum hlutverkum, síðast sem forstöðumaður sölu- og viðskiptastýringar á fyrirtækja- og fjárfestasviði bankans. Edda sé með B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún sé varaformaður Samtaka verslunar og þjónustu ásamt því að sitja í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins. Harpa tekur við Harpa Hödd Sigurðardóttir hafi verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs í stað Eddu. Harpa hafi starfað hjá Eimskip frá árinu 2019 í nokkrum hlutverkum á mannauðs- og samskiptasviði, síðast sem forstöðumaður fræðslu og þróunar. Áður en Harpa hóf störf hjá Eimskip hafi hún starfað við mannauðsmál hjá Lyfju hf.. Harpa sé með B.Sc. í sálfræði og M.Sc. í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Mannauðs- og samskiptasviði tilheyri mannauðs-, markaðs- og samskiptamál. Sjálfbærnimál sem áður tilheyrðu sviðinu flytjist á fjármálasvið. Samhliða þessum breytingum láti Jónína Magnúsdóttir, sem verið hafi framkvæmdastjóri innanlandssviðs af störfum og henni séu færðar þakkir fyrir starf sitt fyrir félagið. Breytingarnar taki nú þegar gildi. Reynsla og þekking komi að góðum notum „Edda Rut hefur verið í framkvæmdastjórn Eimskips frá árinu 2020 og þekkir starfsemi og viðskiptavini félagsins vel. Hún hefur borið ábyrgð á viðamiklum málaflokkum þvert á fyrirtækið og mun sú reynsla og þekking koma að góðum notum í nýju starfi meðal annars þegar kemur að ræktun viðskiptasambanda. Framundan eru spennandi en jafnframt krefjandi verkefni á innanlandssviði. Væntingar og þarfir viðskiptavina eru í stöðugri þróun og okkar markmið er að veita ávallt framúrskarandi þjónustu og vaxa með viðskiptavinum okkar um allt land,“ er haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni, forstjóra Eimskips. Á sama tíma sé ánægjulegt að sjá Hörpu stíga upp og taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. „Hluti af vegferð okkar á síðustu árum hefur verið að styrkja menningu og þróa mannauð félagsins og hefur Harpa verið í lykilhlutverki á þeirri vegferð. Harpa hefur unnið með stjórnendum og starfsfólki þvert á félagið, ekki síst í verkefnum tengdum starfsstöðvum erlendis, og meðal annars leitt leiðtogaþróun félagsins. Á sama tíma og ég þakka Jónínu fyrir hennar störf og óska henni velfarnaðar, hlakka ég til að vinna með Eddu og Hörpu í nýjum hlutverkum.“
Eimskip Vistaskipti Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira