Ný könnun: Viðreisn hjá Flokki fólksins og Píratar út af þingi Kolbeinn Tumi Daðason og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 28. október 2024 12:01 Inga Sæland hefur ástæðu til að fagna en það sama er ekki hægt að segja um Gísla Rafn Ólafsson og hans fólk hjá Pírötum. vísir/Hulda Margrét Viðreisn og Flokkur fólksins eru í sókn samkvæmt nýjustu könnun Maskínu og Píratar virðast á fallanda fæti. Fylgi Viðreisnar hefur aldrei mælst hærra í Maskínukönnun og Flokkur fólksins hefur reist við þingi sitt umfram það sem flokkurinn fékk í kosningunum 2021. Píratar tapa rúmum tveimur prósentum og mælast út af þingi.
Samfylkingin mælist enn sem fyrr stærsti flokkurinn þótt fylgið hafi dalað nokkuð frá því í vor, þegar hún var að mælast með um 27 prósent. Nú mælist Samfylkingin með 22,2 prósent og dalar örlítið milli mánaða. Viðreisn hefur hinsvegar sótt mikið í sig veðrið undanfarið og mælist nú næst stærsti flokkurinn á þingi með 16,2 prósent. Í þriðja sæti kemur svo Miðflokkurinn með 15,9 níu prósent en Miðflokksmenn hafa verið í öðru sæti í undanförnum Maskínukönnunum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og hennar fólk í Viðreisn skýst upp fyrir Miðflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Munurinn er þó ómarktækur.Vísir/Hulda Margrét Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með rétt tæp fjórtán prósent atkvæða, sem er mjög svipuð niðurstaða og í síðustu könnunum. Flokkur fólksins tekur hins vegar stökk á milli kannanna eftir að tilkynnt var um nýja oddvita og brotthvarf tveggja þingmanna. Flokkurinn mælist nú með 9,3 prósent en mældist með 6,6 prósent í síðustu könnun Maskínu. Framsóknarflokkurinn yrði síðan síðasti flokkurinn til að koma mönnum á þing, yrðu niðurstöður kosninga í samræmi við þessa nýju könnun. Flokkurinn mælist nú með 6.9 prósent. Aðrir flokkar, og þar á meðal Píratar og VG, sem nú eru á þingi, ná ekki mönnum inn. Miðað við þingstyrk á landsvísu segir Maskína að þingsæti skiptist þá á þann veg að Samfylkingin fengi sautján þingsæti. Viðreisn fengi tólf, Miðflokkurinn einnig tólf og Sjálfstæðisflokkurinn tíu. Flokkur fólksins næði sjö þingmönnum inn og Framsóknarflokkur yrði minnsti flokkurinn, með fimm þingsæti. Ef rýnt er í hvert kjördæmi fyrir sig má sjá að flokkar á borð við Sósíalistaflokkinn, Pírata og Vinstri græn gætu náð inn þingmanni í einstaka kjördæmi. Kyn, aldur, búseta, menntun og tekjur Áhugavert er að rýna í fylgi flokkanna eftir öðrum breytum, svo sem kynjum, aldri, búsetu, menntun, tekjum og í einstökum kjördæmum eins og sjá má á myndinni að neðan. Fylgi eftir ólíkum breytum.Maskína Munurinn á kynjunum er áberandi mestur hjá Miðflokknum. Rúmlega 21 prósent karla hyggjast greiða flokknum atkvæði sitt en tæplega tíu prósent kvenna. Flokkur fólksins höfðar á móti frekar til kvenna eða 11 prósent en 7,8 prósent karla styðja flokkinn. Viðreisn virðist höfða mun frekar til unga fólksins en þeirra eldri. Flokkurinn hefur yfir 22 prósenta fylgi hjá 18-29 ára en rúmlega átta prósenta fylgi hjá sextíu ára og eldri. Á hinn bóginn heldur Sjálfstæðisflokkurinn í 20 prósenta fylgi hjá þeim elstu á meðan fylgið er nær tíu prósentum hjá yngra fólki. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar.Vísir/Hulda Margrét Samfylkingin sækir fylgi sitt mest til Reykjavíkur eða 27,5 prósent á meðan fylgið á Austurlandi er rúm ellefu prósent. Hið sama gildir um Viðresin sem er langsterkust á höfuðborgarsvæðinu. Miðflokkurinn hefur mest fylgi allra á Vesturlandi og Vestfjörðum eða rúmlega 26 prósent en rúm 12 prósent í Reykjavík. Fólk með háskólamenntun kýs frekar Samfylkinguna og Viðreisn á meðan fólk með grunnskólapróf horfir til Miðflokksins og Flokks fólksins. Kjósendum Viðreisnar fjölgar með hækkandi tekjum og sama er uppi á teningnum hjá Sjálfstæðisflokknum. Þeir efnaminni horfa til flokks fólksins sem andar ofan í hálsmál Samfylkingarinnar sem annar stærsti flokkurinn hjá þeim tekjulægstu.
Alþingiskosningar 2024 Skoðanakannanir Vinstri græn Sjálfstæðisflokkurinn Píratar Viðreisn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Sósíalistaflokkurinn Lýðræðisflokkurinn Mest lesið Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská Innlent Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Innlent Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Innlent Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Innlent Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Erlent Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Erlent Rekja stuld á korti af Ísrael úr Seltjarnarneskirkju til átakanna Innlent Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Innlent Fleiri fréttir Virðist sem D hafi náð að hægja á blæðingunni til M Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina Inga Sæland ætlar með Flokk fólksins upp í fimmtán prósent Bjarni fundar með forseta Úkraínu í dag Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Glóðvolg Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Bylgjunnar Falla tímabundið frá ákæru fyrir tilraun til manndráps Rekja stuld á korti af Ísrael úr Seltjarnarneskirkju til átakanna Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Grímur, Halla Hrund, Jens Garðar og Víðir mæta í Pallborðið Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli „Það var ekkert eftir nema dauðinn sem kom á ógnarhraða“ Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu Áhöfn smábáts sem strandaði hífð upp í þyrlu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Einn fluttur á bráðamóttöku eftir slagsmál Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Reykvíkingur ársins leiðir listann ásamt Ragnari Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni Skólarnir eigi að hjálpa nemendum að ná árangri og vera jöfnunartæki Séra Davíð Þór leiðir Sósíalista í Suðvesturkjördæmi Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Selenskí kemur til Íslands á morgun Sjá meira