Réttur og öryggi leigjenda aukast á sunnudaginn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2024 13:31 Telja má líklegt að leigjendur séu að finna í einhverjum af þessum húsum í Vogunum í Reykjavík. Vísir/vilhelm Á sunnudaginn taka gildi ný lög um breytingar á húsaleigulögum, en markmið breytinganna er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi. Með breytingum verður vísitölutenging styttri samninga óheimil, auk þess sem skilyrði verða sett fyrir því að leigjendur eða leigusalar geti farið fram á breytingar á leigufjárhæð.
Þetta kemur fram á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Með nýjum lögum verður leigusali að kanna hvort leigjandi ætli að nýta sér forgangsrétt og verður honum óheimilt að segja upp ótímabundnum samningi án ástæðu. Breytingarnar taka til samninga sem gerðir eru eftir mánaðamótin auk samninga sem eru endurnýjaðir eða framlengdir eftir þann tíma. Vísitölutenging styttri samninga óheimil Ekki verður heimilt að semja um að leiguverð taki breytingum á samningstímanum ef um samning er að ræða sem er til 12 mánaða eða skemur. Þetta þýðir t.d. að vísitölutenging leigufjárhæðar er ekki lengur leyfileg þegar um er að ræða tímabundna samninga, nema að tímalengd þeirra sé 13 mánuðir eða lengri. Áfram verður heimilt að vísitölutengja ótímabundna samninga. Samningar um íbúðir lögaðila sem ekki er rekinn í hagnaðarskyni geta þó verið undanþegnir þessari reglu, t.d. námsmannaíbúðir og áfangaheimili. Sem dæmi má taka að tímabundinn húsaleigusamningur til 12 mánaða getur ekki innihaldið ákvæði um breytingar á leiguverði skv. vísitölu neysluverðs. Samningur sem gerður er til 13 mánaða eða lengur getur þó innihaldið slíkt ákvæði, sem og samningar sem ekki hafa neina lokadagsetningu og eru þá ótímabundnir. Leigufjárhæð má breyta að ákveðnum skilyrðum uppfylltum Með lagabreytingunum munu bæði leigjendur og leigusalar geta farið fram á breytingu á leiguverði eftir að tólf mánuðir eru liðnir frá undirritun samnings í þremur af eftirfarandi tilfellum: Ef leigusali er lögaðili og rekstrarkostnaður hans hækkar. Ef leigjandi eða leigusali vill samræma leiguverðið við markaðsverð á sambærilegu húsnæði. Ef óhagnaðardrifin leigufélög vilja jafna leigufjárhæð á sambærilegu húsnæði í þeirra eigu til að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun. Í tilfellum 1 og 3 ber leigusala að tilkynna leigjanda um leiguhækkun með að minnsta kosti þriggja mánaða fyrirvara og hefur leigjandinn þá 30 daga til að tilkynna hvort hann samþykki hækkunina, vilji bera hana undir kærunefnd húsamála eða segja upp leigusamningi. Samskonar frestur gildir í tilfelli 2, komist leigjandi og leigusali ekki að samkomulagi. Verður að kanna hvort leigjandi ætli að nýta sér forgangsrétt Í núgildandi lögum eiga leigjendur sem leigja húsnæði tímabundið almennt forgangsrétt til áframhaldandi leigu húsnæðisins að leigutíma loknum, en með nýju lögunum er sú skylda lögð á leigusala að kanna hvort leigjandi hyggist nýta sér forgangsrétt til áframhaldandi leigu. Þegar húsaleigusamningur var gerður til skemmri tíma en þriggja mánaða ber leigusala að spyrja leigjanda áður en 30 dagar eru eftir af leigusamningnum, en þremur mánuðum sé samningurinn lengri. Leigjandi skal tilkynna leigusala innan 30 daga frá fyrirspurninni hvort hann ætli að nýta sér forgangsréttinn. Uppsögn ótímabundinna samninga án ástæðu óheimil Samkvæmt gildandi lögum er leigusala frjáls uppsögn ótímabundins leigusamnings án sérstakrar ástæðu. Sú breyting er gerð að sérstakar ástæður þurfi að liggja fyrir til að leigusali geti sagt upp ótímabundnum samningi og að ástæður uppsagnar skuli tilkynntar með formlegum hætti. Leigjandi getur þá borið uppsögnina undir kærunefnd húsnæðismála. Þau atriði sem leigusali getur borið fyrir sig við uppsögn ótímabundinn samning eru listuð upp með tæmandi hætti í lögunum.
Leigumarkaður Húsnæðismál Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Allt að 1500 króna munur á jólabókunum milli verslana Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Breyttur opnunartími hjá Sorpu Hægt að spara háar fjárhæðir í jólainnkaupum Verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum Jólakjötið töluvert dýrara í ár „Þetta er bara algjörlega galið“ Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Jólabækurnar nær alltaf ódýrastar í Bónus Kostnaður við tónleika útskýri hátt miðaverð Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Vara við listeríu í rifnu grísakjöti Bíða enn eftir tæpri milljón í endurgreiðslu eftir fall Play Tilefni til að varast svik á svörtum föstudegi Kalla inn silung og bleikju vegna listeríu Fordæmalaus skortur á skötu Hafði betur eftir að hafa fengið of stór gleraugu í hendurnar Vilja fresta því að slökkva á 2G og 3G sendum Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Craft Burger Kitchen hafa lokað dyrunum í síðasta skipti Kalla inn aspas í bitum frá Ora Hækka árgjöld kreditkorta í fyrsta sinn í sjö ár Innkalla pastaskeiðar úr plasti Búnir að gefast upp á fríum stæðum við TBR Sjá meira