Ferðaþjónusturisar stefna á sameiningu Árni Sæberg skrifar 17. nóvember 2025 13:36 Björn Ragnarsson og Ásgeir Baldurs. Stjórnir Arctic Adventures hf. og Kynnisferða hf. (Icelandia) hafa undirritað samkomulag um helstu skilmála vegna áforma um sameiningu félaganna. Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafunda félaganna.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að gert sé ráð fyrir að áreiðanleikakönnun og kaupsamningsgerð ljúki fyrir áramót. Félögin muni ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Stefna á að styrkja stöðu landsins „Með sameiningu þessara tveggja rótgrónu félaga verður til öflugt ferðaþjónustufyrirtæki með afar breitt þjónustuframboð. Sameinað félag verður leiðandi afl í fjárfestingum, uppbyggingu og þróun íslenskrar ferðaþjónustu um land allt og styrkir þannig samkeppnisstöðu greinarinnar gagnvart alþjóðlegum ferðaþjónusturisum,“ er haft eftir Ásgeiri Baldurs, forstjóra Arctic Adventures. „Við horfum á þennan samruna sem sameiginlegt tækifæri til að byggja upp framtíð íslenskrar ferðaþjónustu með fólkið okkar í fararbroddi. Starfsfólk beggja fyrirtækja býr yfir dýrmætri reynslu og ástríðu fyrir að skapa einstaka upplifun fyrir gesti okkar. Með því að sameina krafta, þekkingu og metnað getum við nýtt tækni og nýsköpun til að efla sjálfbæra ferðaþjónustu, skapa fleiri tækifæri, og styrkja Ísland sem leiðandi áfangastað í alþjóðlegri samkeppni,“ er haft eftir Birni Ragnarssyni, forstjóra Icelandia. Í tilkynningu segir að ráðgjafar Arctic Adventures í viðskiptunum séu Arma Advisory og Logos lögmannsþjónusta. Arctica Finance og BBA//Fjeldco séu ráðgjafar Icelandia. Áratugareynsla hjá báðum Loks segir að Arctic Adventures, sem hafi verið stofnað árið 1983, sé leiðandi fyrirtæki á sviði ævintýra- og afþreyingarferðaþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið leggi áherslu á ábyrgt og öruggt aðgengi að áfangastöðum í íslenskri náttúru og bjóði ferðamönnum sjálfbæra og vistvæna ferðaþjónustu um allt land. Félagið reki vinsæla áfangastaði á borð við Fjaðrárgljúfur, Kerið, Into the Glacier, Raufarhólshelli og Hvalasafnið. Arctic Adventures reki að auki hótel og gististaði ásamt ferðabílaleigunni Happy Campers. Kynnisferðir, sem starfi undir vörumerkinu Icelandia, er eitt rótgrónasta og fremsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Fyrirtækið var stofnað árið 1968 og býður ferðamönnum upp á fjölbreytt úrval ferða og upplifana undir þekktum vörumerkjum á borð við Reykjavik Excursions, Flybus, Icelandic Mountain Guides, Dive.is og Activity Iceland. Icelandia sinnir einnig almenningssamgöngum og flutningum, og hefur á síðustu árum lagt aukna áherslu á sjálfbærni, gæði og stafræna þjónustu.
Ferðaþjónusta Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira