Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að byggingarréttur fyrir allt að 177 íbúðir í hjarta borgarinnar við gömlu höfnina í Reykjavík hafi verið boðinn út og tilboðsfrestur sé til 5. júlí næstkomandi.
27 þúsund blandaðir fermetrar
Auk íbúða nái byggingarrétturinn einnig til atvinnu- og þjónustuhúsnæðis.
Á Hlésgötu 1 verði heimilt að byggja allt að 110 íbúðir í tveggja til fimm hæða í húsum. Heildarbyggingarmagn á lóðinni sé 17.120 fermetrar. Á Hlésgötu 2 verði heimilt að byggja allt að 67 íbúðir í tveggja til fjögurra hæða í húsum. Heildarbyggingarmagn þeirrar lóðar sé 10.368 fermetrar.
Hægt að færast ekki of mikið í fang
Sem áður segir var samningi um uppbyggingu í Vesturbugt rift í fyrra. Reykjavíkurborg sagði byggingafélagið Vesturbugt ehf. ekki hafa aðhafst neitt frá því að samningar voru undirritaðir árið 2017.
Vesturbugt ehf. taldi riftunina ólögmæta, meðal annars vegna þess að deiliskipulag fyrir svæðið hefði ekki enn verið samþykkt.
„Riftunin er fullkomlega eðlileg miðað við forsögu málsins. Borgin mun bjóða þessar frábæru lóðir aftur út í haust,“ sagði Dagur B. Eggertsson, þáverandi borgarstjóri við því.
Í tilkynningunni nú segir að í kjölfar riftunarinnar hafi verið gerðar minniháttar breytingar frá fyrra deiliskipulagi, meðal annars að tvískipta lóðinni. Bjóðendur hafi nú val um bjóða í aðra lóðina eða báðar.