Dómurinn segir margt á huldu í máli Kolbeins Jón Þór Stefánsson skrifar 3. júní 2024 15:58 Kolbeinn Sigþórsson í landsleik Íslands gegn Andorra árið 2019. Vísir/Vilhelm Dómur í máli Kolbeins Sigþórssonar hefur verið birtur en hann var sýknaður í Héraðsdómi Reykjanesi í dag af ákæru um nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Í dómnum segir að margt sé á huldu um málið.
Brotaþoli málsins er barnung stúlka sem gisti í sumarhúsi á vegum Kolbeins þegar atvik málsins áttu sér stað í júní 2022. Fram kemur að hún sé vinkona barns Kolbeins. Honum var gefið að sök að beita stúlkuna ólögmætri nauðung með því að draga niður nærbuxur hennar, strjúka henni um kynfærin fram og til baka mörgum sinnum og setja fingur í leggöng hennar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er stúlkan á yngsta grunnskólastigi. Deilt um hversu oft stúlkan hafi gist í sumarhúsinu Í dómnum segir að margt sé á huldu um málið sem geti skipt máli. Til að mynda sé óljóst hvort stúlkan hafi gist eina eða tvær nætur í sumarhúsinu, og einnig sé óljóst hvort þriðja barnið hafi gist í húsinu umrædda nótt. Þá sé á reyki hvernig stúlkan fór heim úr sumarhúsinu. Framburður vitna um það atriði er mismunandi. Það er að segja hvort Kolbeinn hafi skutlað stúlkunni heim eða móðir hennar komið og sótt hana. Kolbeinn og móðirin, sem er lykilvitni í málinu, voru ósammála um að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem stúlkan gisti í sumarhúsinu. Hún vildi hún meina að hún hefði gist þar nokkrum sinnum áður og þá nokkrar nætur í senn. Stúlkan og Kolbeinn séu ein til frásagnar um það sem raunverulega gerðist í sumarhúsinu. Þau sem voru líka í sumarhúsinu eru barn hans og mögulega þriðja barnið. Dómurinn segir að framburður þeirra tveggja sé óáreiðanlegur sérstaklega þar sem þau séu að segja frá atvikum sem þau upplifðu ekki af eigin raun. Segir stúlkuna hafa verið með heimþrá Kolbeinn neitaði sök. Framburður hans var á þá leið að börnin hafi verið farin að sofa umrætt kvöld þegar stúlkan kallaði til hans að hún væri með heimþrá og gæti ekki sofnað. Hann hafi þá lagst í rúm barnanna og reynt að hughreysta hana. Hún hafi beðið hann um að hringja í móður hennar og hann gert það en hún ekki svarað. Þá hafi hann boðið henni að kíkja fram í stofu og horfa á sjónvarp og hún fallist á það. Hún hafi setið við hlið eða í fangi hans í sófa og á endanum sofnað. Þá hafi hann borið hana inn í rúmið og lagt hana þar. Þegar hann hafi sjálfur farið að sofa hafi hann líka lagst í þetta sama rúm. Kolbeinn er sagður hafa skorast undan því að gefa skýrslu við aðalmeðferð málsins og vísaði hann til eigin framburðar hjá lögreglu. Dómnum þótti Kolbeinn skýr og stöðugur í frásögn um sakarefni málsins. Hann væri hnökralaus og trúverðugur. Sagði Kolbein sækjast í að vera einn með stúlkunni Dómnum þótti nokkrir hlutir verða til þess að rýra frásögn móðurinnar. Hún hafi haldið því fram að Kolbeinn hafi verið heillaður af dóttur hennar, og hann hafi gert sér far um að vera einn með henni. Hann hafi viljað einangra sig í sumarhúsinu með börnunum. Það sem dómurinn bendir á er að svo virðist sem móðirin hafi óskað eftir aðstoð Kolbeins við að aðstoða við umönnun dótturinnar, en hann ekki sótt í félagsskap barnsins. Þá segir að fullyrðingar hennar um að dóttirin hafi oft gist í sumarhúsinu áður geti engan vegin staðist. Óhlutlæg og milliliðalaus endursögn liggi ekki fyrir Þá þótti framburður stúlkunnar ekki trúverðugur. Sérfræðingur í klínískri barnasálfræði var meðdómandi í málinu og hann sagði að ekki yrði litið fram hjá því að vitnisburður barna sé jafnvel síðra sönnunargagn en vitnisburður fullorðinna. Hann geti tekið meiri breytingum í ljósi aldurs og þroska. Stúlkan hafi sagt mörgum frá atvikum næturinnar og segir í dómnum að það geti haft áhrif á framburðinn. Dómurinn segir að þar af leiðandi sé lítið hald í málatilbúnaði ákæruvaldsins um að óhlutlæg og milliliðalaus endursögn stúlkunnar lægi fyrir í máli. Líkt og áður segir var Kolbeinn sýknaður í dag. Miskabótakröfu sem foreldri stúlkunnar hafði lagt fram var vísað frá dómi. Þá mun ríkissjóður greiða sakarkostnað málsins. Ríkissaksóknari hefur fjórar vikur til að ákveða hvort dómnum verði áfrýjað til Landsréttar.
Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira