Viðskipti innlent

Ólöf og Omry selja Kryddhúsið

Lovísa Arnardóttir skrifar
Omry og Ólöf stofnuðu Kryddhúsið fyrir níu árum.
Omry og Ólöf stofnuðu Kryddhúsið fyrir níu árum.

John Lindsay hf. hefur keypt Kryddhúsið af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avraham. Þau stofnuðu fyrirtækið árið 2015 og framleiða í dag yfir 90 tegundir af kryddum og kryddblöndum. Með kaupunum verður framleiðsla og vörulager flutt í Klettagarða 23 úr Flatahrauni í Hafnarfirði.

„Við teljum að sameinað félag muni skapa ný tækifæri og opna nýja markaði fyrir þessar frábæru vörur. Við erum stöðugt að auka vöruframboð og þjónustu við viðskiptavini okkar og eru kaupin liður í því,“ segir Stefán S. Guðjónsson, eigandi og framkvæmdastjóri Lindsay í tilkynningu.

Þar kemur einnig fram að Kryddhúsið verð sameinað matvælaframleiðandanum Agnari Ludvigssyni ehf., sem er dótturfélag Lindsay, og framleiðir Royal lyftiduft, Royal búðinga og Bezt á kryddin.

Arta lögmenn sáu um ráðgjöf við kaupin og KPMG annaðist áreiðanleikakönnun fyrir hönd Lindsay.

Starfsemi Kryddhúsins verður í Klettagörðum.Mynd/Lindsay hf.

„Við göngum á vit nýrra ævintýra eftir lærdómsrík ár í Kryddhúsinu. Eftir stendur frábært vörumerki sem á eftir að dafna enn frekar hjá nýjum rekstraraðilum enda einvala starfslið í hverri stöðu þar. Það verður gaman að fylgjast með á hliðarlínunni í framtíðinni,“ segja Ólöf og Omry í tilkynningu um kaupin.


Tengdar fréttir

Krydd­húsið minnkar kol­efnis­spor með nýjum um­búðum

Kryddhúsið hefur sagt skilið við plaststauka og ál í öllum umbúðum kryddlínunnar. Ýmsar spennandi nýjungar eru einnig væntanlegar frá Kryddhúsinu. Ólöf Einarsdóttir, annar eigenda og framkvæmdastjóri segir stefnu Kryddhússins að starfa í sátt við umhverfið.

Hafa kryddað líf og tilveru Íslendinga í fimm ár

Kryddhúsið fagnar fimm ára afmæli í ár. Hjónin Ólöf Einarsdóttir og Omry Avraham hófu starfsemina í lítill íbúð í miðbænum. Nú fimm árum síðar er kryddin að finna í hillum allra helstu matvöruverslana landsins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×