Viðskipti innlent

Björn Brynj­úlfur nýr fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Björn Brynjúlfur Björnsson er nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Björn Brynjúlfur Björnsson er nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. viðskiptaráð

Björn Brynjúlfur Björnsson er nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Gengið hefur verið frá ráðningu Björns og hefur hann störf þann 1. maí næstkomandi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðskiptaráði. Björn er hagfræðingur að mennt með meistaragráðu frá Oxford háskóla. Hann er framkvæmdastjóri og stofnandi Moodup, hugbúnaðarfyrirtækis sem mælir starfsánægju fyrir vinnustaði. Áður starfaði hann sem efnahags- og rekstrarráðgjafi, hagfræðingur Viðskiptaráðs og ráðgjafi hjá McKinsey & Company.

„Ég hlakka til mæta aftur til Viðskiptaráðs og vinna þar að jákvæðum breytingum fyrir íslenskt samfélag. Á síðustu árum hef ég öðlast fjölþætta sýn á rekstrarumhverfi fyrirtækja í gegnum störf mín sem frumkvöðull og ráðgjafi, sem verður gott veganesti á þeirri vegferð. Innan raða Viðskiptaráðs má finna breiðan hóp fyrirtækja með reynslumikla stjórnendur. Það verður heiður að starfa með þessu fólki auk stjórnvalda, stjórnsýslu og fleiri aðila,“ segir Björn Brynjúlfur.

Kemur í stað Svanhildar

Björn Brynjúlfur tekur við stöðunni af Svanhildi Hólm Valsdóttur en hún tekur verður nýr sendiherra Íslands í Washington.

Töluvert var fjallað um skipun Svanhildar vegna tengsla hennar við Bjarna Benediktsson, utanríkisráðherra. Svanhildur var um árabil aðstoðarmaður Bjarna, en þar áður var hún framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

„Við hjá Viðskiptaráði erum stolt af því að hafa fengið Björn til liðs við okkur. Hann þekkir vel til starfa ráðsins auk þess að hafa djúpa þekkingu á efnahagsmálum. Reynsla hans og hæfileikar munu efla ráðið sem hreyfiafl framfara fyrir íslenskt atvinnulíf og þjóðfélag. Með Björn í forystu verðum við vel í stakk búin til að styðja við heilbrigt og kraftmikið atvinnulíf, sem er undirstaða framfara og bættra lífskjara,“ segir Andri Þór Guðmundsson, nýr formaður Viðskiptaráðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×