Lífið

Sara Sigmunds sviptir hulunni af kærastanum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Parið glæsilega á sólríkri strönd.
Parið glæsilega á sólríkri strönd.

Sara Sigmundsdóttir afrkskona í CrossFit sendi kærastanum og CrossFit-kappanum Luke Ebron hjartnæma afmæliskveðju á Instagram í tilefni dagsins. Í færslunni má sjá myndir af parinu saman en þau hafa haldið sambandinu frá sviðsljósinu. 

„Til hamingju með daginn uppáhalds manneskjan mín. Takk fyrir að hugsa allaf svona vel um mig, sérstaklega þegar þú heldur á töskunum mínum og þrífur upp eftir mig þegar að ég helli niður. Fyrir að vera minn helsti stuðningsmaður, hafa trú á mér og kenna mér þolinmæði,“ skrifaði Sara meðal annars við færsluna. 

Sara lýsir Luke sem hjartahlýjum, hugulsömum og dásamlegum manni. 

Luke er af írskum og amerískum ættum og starfar sem áhugaljósmyndari á Norður-Írlandi og London. Sara og Luke hafa ekki birt myndir af hvort öðru á samfélagsmiðlum til þessa.

Þrátt fyrir það virðast þau hafa ferðast víða saman um heiminn síðastliðna mánuði. Um miðjan nóvember í fyrra voru þau bæði stödd í fríi í Ástralíu.

Í byrjun mars 2023 fóru þau bæði í fjórhjólaferð um eyðimerkur Dubai.


Tengdar fréttir

Sara Sigmunds orðin fjárfestir

Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir tilkynnti í gær um aðeins öðruvísi styrktarsamning en vanalega.

Sara eyðir klukku­tíma á dag í súr­efnis­klefa

Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir leitar þessa dagana allra ráða og allra leiða til að ná sér góðri af meiðslum sínum áður en nýtt tímabil hefst með CrossFit Open í næsta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.