Sala á Degi einhleypra hrynur Jakob Bjarnar skrifar 9. janúar 2024 15:54 Magnús Sigurbjörnsson er forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar verslunarinnar. vísir/vilhelm Neytendur horfðu lítið sem ekkert til Dags einhleypra (e. Singles Day) þegar þeir versluðu jólagjafir þetta árið.
Þetta kemur fram í nýjum gögnum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Salan hrundi. „Netverslun á Singles Day dróst saman um tæp 40% í netverslun á milli ára. Þá var samdrátturinn tæp 16% í verslun,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Þar á bæ telja menn líklega skýringu þá að dagurinn hitti á laugardag í ár en hann er fastsettur 11. nóvember á hverju ári. Íslendingar virðast hafa verið meira til í að strauja kortið sitt á föstudeginum en á sjálfum Degi einhleypra. Rannsóknarsetur verslunarinnar „Heildarnetverslun á Singles Day nam 984 milljónum króna en á föstudeginum fyrir Singles Day nam heildarnetverslun 1,02 milljarði króna. Þá var netverslun á Singles Day árið 2022 1,6 milljarður króna.“ Hins vegar eru vinsældir hins Svarta föstudags að aukast og telst hann nú langvinsælasti afsláttardagur nóvembermánaðar. „Jókst netverslun á Black Friday um 23% og almenn verslun um 11,5%. Heildarvelta dagsins nemur 5,3 milljörðum króna og þar af 1,15 milljarðar í netverslun.“ Stafrænn mánudagur, eða Cyber Monday, er eilítið að sækja í sig veðrið en heildarvelta á þeim degi er 3,9 milljarðar króna og þar af 920 milljónir króna í netverslun. „Netverslun á Cyber Monday eykst um 4% á milli ára en um 20% í almennri verslun.“
Neytendur Verslun Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira