Doncic með 50 stig í sigri gegn Suns Dagur Lárusson skrifar 26. desember 2023 09:43 Luka Doncic Vísir/getty Luka Doncic fór mikinn í liði Dallas Mavericks gegn Phoenix Suns í nótt en hann skoraði 50 stig fyrir sitt lið.
Tveir leikir fóru fram í NBA körfuboltanum í nótt en það voru viðureignir Dallas Mavericks gegn Phoenix Suns og Miami Heat gegn Philadelphia 76ers. Það kom engum á óvart að Luka Doncic átti enn einn stórleikinn í liði Dallas er liðið hafði betur gegn Phoenix Suns. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 36-24 fyrir Dallas og var Doncic stigahæstur. Í öðrum leikhluta náðu gestirnir í Suns að minnka forskot Dallas um tvö stig og var staðan í hálfleik 64-54. Í þriðja leikhluta spiluðu gestirnir sinn besta körfubolta og náðu forystunni með góðri spilamennsku frá Greyson Allen og Chimezie Metu. Á þessum tímapunkti var Luka Doncic kominn með þrjátíu stig en hann var hvergi nærri hættur. Í fjórða leikhluta var honum nóg boðið og setti hann niður sitt fimmtugasta stig í leiknum og dró enn og aftur vagninn fyrir Mavericks og vann liðið því að lokum sigur, 128-114. Luka Doncic var stigahæstur í leiknum með 50 stig en á eftir honum var það Derrick Jones með 23 stig. Hjá Suns var það Greyson Allen með 32 stig en á eftir honum var það Chimezie Metu með 23 stig. Kevin Durant náði sér ekki nægilega vel á strik en hann setti niður 16 stig. Úrslit næturinnar: Dallas Mavericks 128-114 Phoenix Suns Miami Heat 119-113 Philadelphia 76ers Hér fyrir neðan má sjá það helsta úr báðum leikjunum.
NBA Körfubolti Mest lesið Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 91-86 | Stjarnan tryggði oddaleik eftir háspennu Körfubolti Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan Körfubolti Uppgjörið: Afturelding - KR 4-3 | Heimasigur eftir tvöfalda endurkomu Íslenski boltinn Glódís fagnaði titlunum í þýskum þjóðbúningi á troðfullu torgi Fótbolti Rombley fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl Körfubolti Sigurður Breki á spítala eftir harkalegt samstuð Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra Íslenski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt: Hugsanlega breyta viðtöl línum í dómgæslu „Við máttum ekki gefast upp“ Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan Rombley fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 91-86 | Stjarnan tryggði oddaleik eftir háspennu „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Sjá meira