Innlent

Höfuð­kúpan til­heyrði danskri konu frá 18. öld

Árni Sæberg skrifar
Mannerfðafræðingarnir Agnar Helgason og Sunna Ebenesersdóttir að skoða beinin og taka sýni til að rannsaka.
Mannerfðafræðingarnir Agnar Helgason og Sunna Ebenesersdóttir að skoða beinin og taka sýni til að rannsaka. Íslensk erfðagreining

Brot úr höfuðkúpu, sem fannst undir gólffjölum í Ráðherrabústaðnum í september, tilheyrði danskri konu sem var uppi á átjándu öld. 

Þetta sögðu mannerfðafræðingar Íslenskrar erfðagreiningar á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum, sem hófst klukkan 13. Fundinn má sjá í heild sinni hér að neðan:

Þau Agnar Helgason og Sunna Ebenesersdóttir kynntu rannsóknina á beinbrotunum og niðurstöður hennar. Helstu niðurstöður voru þær að líkamsleifarnar hafi tilheyrt danskri konu með brúnt hár og brún augu. Hún eigi enga afkomendur eða skyldmenni hér á landi.

Hún hafi að öllum líkindum lifað og dáið hér á landi á 18. öld.

Fjarskyldir ættingjar hennar fundust hins vegar í Danmörku. Kári Stefánsson greip orðið á fundinum og sagði dönsk yfirvöld ekki hafa leyft frekari rannsóknir á því hvaða Danir eru skyldir henni.

Mengun í erfðaefninu

Agnar sagði að við rannsókn á erfðaefni úr höfuðkúpuni hafi um fimmtán prósent þess tilheyrt öðrum en konunni. Mengunin sé að öllum líkindum erfðaefni íslenskra karlmanna, sem voru uppi eftir daga konunnar en þó fyrir margt löngu. 

Þá sagði Agnar það ágæta tilgátu að bein konunnar hafi komið úr Víkurkirkjugarði, sem var við Landssímareitinn. Í gegnum tíðina hafi ýmsar líkamsleifar komið í ljós við byggingarvinnu á því svæði og beinin gætu hafa ratað í Ráðherrabústaðinn þaðan. 

Kári lagði áherslu á að sú ályktun væri þó ekki erfðafræðilegs eðlis.

Lítið erfðaefni og mjög niðurbrotið

Í upphafi fundar fór Sunna yfir það hvernig niðurstöður rannsóknarinnar fengust. Hún sagði lítið erfðaefni hafa verið í höfuðskeljunum og það erfðaefni mjjög niðurbrotið. Rannsakendur hafi þurft að greina mörg DNA-sýni og raðgreina þau um tífallt meira en venjuleg blóðsýni eru raðgreind.

Samt hafi fengist um sextíufallt minna af DNA-bútum til þess að draga ályktinar um eiganda beinanna. Það hafi þó verið nóg til þess að svara lykilspurningum um konuna.


Tengdar fréttir

Höfuðkúpa fannst í Ráðherrabústaðnum

Við framkvæmdir í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu á dögunum fundust tveir hlutar úr höfuðkúpu manneskju. Ekki er grunur um glæpsamlegt athæfi. Beinin eru komin í vörslu Þjóðminjasafns Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×