Innlent

Bein út­sending: Kynna fjár­hags­á­ætlun Reykja­víkur­borgar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Einar Þorsteinsson borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Reykjavíkurborg hefur boðað til blaðamannafundar til að kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2029. 

Blaðamannafundurinn hefst klukkan 11:30 og verður haldinn í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14, jarðhæð. Eftir stutta kynningu frá Einari Þorsteinssyni borgarstjóra gefst fjölmiðlum kostur á að ræða við Einar Þorsteinsson borgarstjóra.

Fjárhagsáætlun verður lögð fram og rædd á fundi borgarstjórnar klukkan tólf. Viðbúið er að upphaf fundarins gæti tafist en foreldrar barna á leikskólum í Reykjavík sem eru í verkfalli ætla að mótmæla við upphaf fundarins í Ráðhúsi Reykjavíkur upp úr klukkan 11:30.

Spilari birtist hér í fréttinni rétt fyrir klukkan 11:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×