Viðskipti innlent

Lands­banka­­fólk fær væna við­bótar­­greiðslu í desem­ber

Árni Sæberg skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. Vísir/Einar

Allir starfsmenn Landsbankans, sem starfa í nóvember og desember, fá 200 þúsund krónur greiddar til viðbótar við kjarasamningsbundna desemberuppbót. Sambærileg ákvörðun hefur ekki verið tekin af hinum stóru viðskiptabönkunum tveimur.

Í svari Landsbankans við fyrirspurn Vísis segir að greitt sé miðað við fullt ársstarf en hlutfallslega lægri fjárhæð til þeirra sem hafa styttri starfstíma og/eða skert starfshlutfall.

Greiðslan, sem verði framvegis greidd einu sinni á ári, sé föst krónutala sem innifeli orlof og taki ekki kjarasamningsbundinni hækkun.

„Með þessari greiðslu erum við að hluta til að koma til móts við sjónarmið um að bæta þurfi kjörin til að þau uppfylli betur það sem kemur fram í starfskjarastefnu bankans um að kjörin eigi að vera samkeppnishæf en hófleg og ekki leiðandi.“

Hinir bankarnir ekki tekið álíka ákvörðun

Í svari Íslandsbanka við fyrirspurn um hvort sambærileg ákvörðun hafi verið tekið segir að kjarasamningsbundin desemberuppbót hafi þegar verið greidd út. Engin ákvörðun liggi fyrir um viðbótargreiðslu.

Í svari Arion banka segir að engin ákvörðun um sambærilega viðbótargreiðslu hafi verið tekin. Í bankanum hefur svokallað kaupaukakerfi verið við lýði í þónokkur ár. 

Í starfskjarastefnu bankans segir að heimilt sé að greiða starfsmönnum og stjórnendum kaupauka á grundvelli sérstaks kaupaukakerfis sem stjórn samþykkir að fengnu áliti starfskjaranefndar og áhættunefndar stjórnar. 

Með kaupauka sé átt við starfskjör starfsmanna bankans sem að jafnaði eru skilgreind með tilliti til árangurs og eru ekki þáttur í föstum starfskjörum starfsmanns, þar sem endaleg fjárhæð eða umfang þeirra liggur ekki fyrir með nákvæmum hætti fyrir fram. Um sé að ræða heimild til greiðslu kaupauka en ekki skyldu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×