Innlent

Fólk virtist hrætt við að mæta í bæinn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson, veitingamaður, telur fólk hafa verið hrætt við að sækja Miðbæinn vegna vopnaðra lögreglumanna.
Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson, veitingamaður, telur fólk hafa verið hrætt við að sækja Miðbæinn vegna vopnaðra lögreglumanna. Vísir/Sigurjón

Veitingamaður telur að þungvopnaðir lögreglumenn hafi skotið fólki skelk í bringu og það þess vegna forðast að sækja miðborgina síðustu daga. Miðbærinn hafi verið „skelfilega rólegur“ yfir leiðtogafundinn.

Vopnaðir lögreglumenn, leyniskyttur á húsþökum og viðamiklar götulokanir einkenndu miðborg Reykjavíkur meðan leiðtogarnir funduðu í Hörpu. Við þjóðmenningarhúsið varð til að mynda til hálfgerður Hopphjólakirkjugarður; bannsvæði fyrir hjólin tók gildi rétt handan við hornið og notendur skildu hjólin eftir í hrönnum við mörk svæðisins.

Veitingamann í miðbænum grunar að margir hafi hreinlega haldið að miðbærinn væri lokaður öllum þessa tvo daga, ekki aðeins bíla- og rafskútuumferð.

„Það hefur verið alveg skelfilega rólegt ef ég á að vera hreinskilinn. Það hefur alveg verið næs að vera með enga bíla í bænum en það hefur bara vantað fólk. Fólk virðist vera hrætt við að koma í bæinn,“ segir Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson, veitingamaður á Brút. 

Hvað ætli valdi? 

„Ég veit það ekki. En mér fannst allavega ekkert þægilegt þegar það sat inni hjá mér fólk með hríðskotabyssur að borða í hádeginu í gær,“ segir Ólafur.

Mörgum hefur eflaust þótt ógnvekjandi að sjá leyniskyttur á þaki Hörpunnar.Vísir Vilhelm

Tékkneski forsetinn fetaði í fótspor Clinton

Talsvert meira líf var þó í miðborginni í dag en í gær, eins og röðin á Bæjarins bestu var til vitnis um. Forseti Tékklands tók sér Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta til fyrirmyndar og greip sér pylsu síðdegis.

Hrafnhildur Ásgeirsdóttir pylsusali hafði ekki tekið á móti neinum þjóðarleiðtoga þegar fréttastofa leit til hennar um hádegisbil; Emmanuel Macron Frakklandsforseti lét sig til dæmis vanta.

„Þannig að það er fúlt. Af því að ég hefði kannski þekkt hann í sjón ef hann hefði komið,“ segir Hrafnhildur.

Þannig að þú stendur bara vaktina hér, kannski kíkir einhver á þig úr Hörpu? 

„Ég vona það. Það eru allavega allir velkomnir.“

Og talandi um Macron; hann reif sig upp fyrir allar aldir í morgun og fór í einkaskoðunarferð á Þingvelli. 

Støre kíkti í pottinn

Fleiri leiðtogar sinntu öðrum verkefnum meðfram fundi; forsætisráðherra Danmerkur gæddi sér á sérstakri sósíal-demókrataköku með formanni Samfylkingarinnar og forsetar Ungverjalands og Póllands skelltu sér í ræktina.

Þá var síðasta verk Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs áður en hann hélt af landi brott í tilefni þjóðhátíðardags Norðmanna, sem er einmitt í dag, að skella sér í pottinn í Sundhöll Reykjavíkur.

Drífa Magnúsdóttir, forstöðumaður Sundhallarinnar, hafði ekki gert sér grein fyrir að Jonas Støre, forsætisráðherra Noregs, hefði kíkt í potta Sundhallarinnar.Vísir/Sigurjón

„Ef það hefði ekki verið viðtal við hann þá hefðum við örugglega ekkert vitað af þessu því hann er reglulegur gestur hér,“ segir Drífa Magnúsdóttir forstöðumaður. 

Hvernig hafa viðbrögðin verið við viðtalinu? 

„Ég hef aðallega fengið komment á að það þurfi að fara að mála pottana,“ segir Drífa og boðar skurk í þeim efnum í sumar, í nafni Jonas Gahr Støre.


Tengdar fréttir

Støre í sundi og Macron á Þing­völlum

Jonas Gahr Støre, for­sætis­ráð­herra Noregs, heim­sótti Sund­höll Reykja­víkur í gær og skellti sér í heita pottinn. Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, fór á Þing­velli í morgun á­samt Dúa J. Land­mark og þjóð­garðs­verði.

Harpa komin í búning al­þjóða­stofnunar

Framkvæmdastjóri Leiðtogafundar Evrópuráðsins segir landsmenn geta verið stolta af fundinum sem hefst á morgun. Víðtækar lokanir hafa áhrif á veitingahúsaeigendur sem hafa undanfarna daga þurft að birgja sig upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×