Klukk þú ert‘ann Erna Magnúsdóttir skrifar 17. maí 2023 12:00 Ljósið klukkar þjóðina, söfnum fyrir nýju húsnæði fyrir Ljósið endurhæfingarmiðstöð Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda er eina sérhæfða endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda á Íslandi. Nú hefur Ljósið starfað í tæp 18 ár, en þar er boðið upp á þverfaglega heildræna þjónustu til að endurhæfa og styðja við þá sem greinast með krabbamein. Ljósið heldur úti öflugu starfi bæði í húsnæði Ljóssins en einnig í fjarfundarbúnaði fyrir landsbyggðina. Einnig er mikil þjónusta við aðstandendur sem oft eiga erfitt með að fóta sig í þessum nýju aðstæðum. Ljósið er heilbrigðisstofnun með viðurkenningu frá Landlæknisembættinu. Frá upphafi hefur verið mikil áhersla á framþróun og grósku í starfinu. Stöðugt er verið að leita nýrra leiða til að aðlaga starfið að þörfum þeirra sem þangað sækja. Starfsfólkið býr yfir mikilli faglegri þekkingu á málefninu og má með sanni segja að fagfólk Ljóssins sé hjartað í starfinu. Samkvæmt þjónustukönnun Ljóssins frá árinu 2021 mæla 99% notenda þjónustu Ljóssins með endurhæfingunni. Við viljum tryggja að krabbameinsgreindir á Íslandi og aðstandendur þeirra og í raun samfélagið allt geti verið viss um að Ljósið sé til staðar um ókomna tíð og veiti þá allra bestu endurhæfingu sem völ er á. Enn þann dag í dag þurfum við að safna fyrir stórum hluta af rekstrinum. Gott orðspor Ljóssins ásamt þeirri staðreynd fleiri eru að greinast með krabbamein hefur gert það að verkum að þjónustuþörfin hefur aukist gífurlega. Nú eru um og yfir 600 einstaklingar sem leita til Ljóssins í hverjum mánuði til að sækja endurhæfingu og stuðning, en árið 2022 voru komur í endurhæfingarúrræði Ljóssins tæplega 30.000. Þessi mikla aðsókn veldur því að húsnæði okkar á Langholtsveginum er orðið of lítið og þröngt þrátt fyrir stækkun. Þröngt mega sáttir sitja dugir því miður ekki lengur til, og því brýn nauðsyn að tryggja krabbameinsgreindum það húsnæði sem þjónustan þar. Við höfum lagt góðan grunn að mikilvægu starfi en nú leitum við að samstarfsaðilum svo við getum lagt hornstein að framtíð endurhæfingar krabbameinsgreindra. Nú ýtum við í Ljósinu úr vör herferð með yfirskriftinni Klukk, þú ert hann! sem er þó ekki bara vísun í það að einn af hverjum þremur greinast með krabbamein á lífsleiðinni heldur er Ljósið líka að fá fyrirtæki, einstaklinga og félög til að klukka hvert annað og hvetja samstarfsfélög og/eða samkeppnisaðila til að taka þátt í þessu spennandi verkefni með félaginu til góðs. Við biðlum því til einstaklinga, félaga og fyrirtækja um að hjálpa okkur í þessu gífurlega mikilvæga starfi og biðjum þau um að leggja eitthvað til eftir efnahag og getu. Síðan getur viðkomandi fyrirtæki skorað á það næst. Nú klukkum við þjóðina - KLUKK þú ert‘ann Fróðleikur: Þjónusta Ljóssins byggir á fræðilegum grunni, og starfið mótað og veitt af háskólamenntuðum iðjuþjálfum, sálfræðingum, sjúkraþjálfurum, næringarfræðingum, íþróttafræðingum, fjölskyldumeðferðarfræðingi auk fjölmargra annara fagaðila eins og markþjálfa, heilsunuddara, snyrtifræðinga, handverksfólks svo dæmi séu nefnd. Öll dagskrá Ljóssins stuðlar að því að nýta nærumhverfi og gera fólk sjálfbært í sinni endurhæfingu sem auðveldar fólki að yfirfæra það sem það lærir í Ljósinu í sitt daglega líf. Vissir þú að einn af hverjum þremur Íslendingum fær krabbamein á lífsleiðinni og af þeim eru um 50% karla og kvenna enn á vinnumarkaði þegar sjúkdómurinn kemur upp?vissir þú að einn af hverjum þremur sem greinast koma í endurhæfingu í Ljósinu? Sem betur fer hafa fimm ára lífshorfur meira en tvöfaldast en með auknum fjölda þeirra sem lifa þurfum við að tryggja að lífsgæði og framlag þessara einstaklinga til samfélagsins verði með hvað mestu móti. Og þar kemur Ljósið við sögu. Höfundur er framkvæmdastýra Ljóssins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar