Tugir sjúklinga látnir í bruna á sjúkrahúsi í Beijing Kjartan Kjartansson skrifar 19. apríl 2023 08:57 Á annað hundrað manns þurfti að flýja Changfeng-sjúkrahúsið þegar kviknaði í því. Sumum þeirra þurfti að bjarga af loftræstieiningum utan á byggingunni. AP/Andy Wong Að minnsta kosti 29 manns eru látnir, þar á meðal 26 sjúklingar, eftir að eldur kom upp á sjúkrahúsi í Beijing í Kína í gær. Tugir manna hafa verið handteknir vegna brunans, þar á meðal forstjóri og næstráðandi sjúkrahússins.
Eldur kviknaði í Chanfeng-einkasjúkrahúsinu síðdegis í gær. Fólk flúði meðal annars út um glugga með því að hnýta lök saman. Auk sjúklinganna 26 eru hjúkrunarfræðingur, sjúkraliði og aðstandandi sjúklings á meðal þeirra látnu, að sögn AP-fréttastofunnar. Þrír eru sagðir þungt haldnir af sárum sínum en alls eru 39 manns til meðferðar. Upptök eldsins eru enn í rannsókn en grunur leikur á að hann hafi kviknað út frá neistum frá logsuðutæki verkamanns sem vann við framkvæmdir á legudeild sjúkrahússins. Á meðal tólf manna sem voru handteknir vegna eldsvoðans var verkstjóri vinnuflokksins. Algengt er að öryggisreglur séu virtar að vettugi í Kína. Slys verða gjarnan á framkvæmdasvæðum vegna lélegs öryggisviðbúnaðar og mikillar yfirvinnu verkamanna. Embættismönnum er síðan mútað til þess að líta fram hjá brotum á reglum.
Kína Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Sjá meira