Lífið

Tryllt dag­­skrá í fimmtu­gs­af­­mæli aldarinnar í Smáranum

Árni Sæberg skrifar
Listamennirnir voru í svo miklu stuði að þeir hentu í eina sjálfu í Smáranum.
Listamennirnir voru í svo miklu stuði að þeir hentu í eina sjálfu í Smáranum. @hreimur78

Það er óhætt að segja að dagskráin hafi verið sérstaklega vegleg í tvöföldu fimmtugsafmæli í Smáranum í Kópavogi í gær. Margir af vinsælustu skemmtikröftum þjóðarinnar skemmtu fleiri hundruð manns í afmæli sem verður lengi í minnum haft.

Það voru hjónin Margrét Skúladóttir Sigurz og Kristján Gunnar Ríkharðsson sem buðu til veislunnar. Margrét fagnar fimmtugsafmæli þann 10. apríl en Kristján Gunnar varð fimmtugur árið 2021 þegar kórónuveirufaraldurinn var í algleymingi og veisluhald ekki í boði.

Auðunn Blöndal og Steindi Jr. voru veislustjórar og kynntu hverja stórstjörnuna í íslenskri tónlist til leiks á fætur annarri. Bræðurnir Frikki Dór og Jón Jónsson sungu saman og í framhaldinu fóru Friðrik Ómar og Selma Björns með gesti í Eurovision vímu.

Emmsjé Gauti kom gestum í rappgírinn áður en Aldamótahljómsveit ásamt söngvurum steig á stokk. Jónsi í Svörtum fötum, Magni í Á móti sól, Hreimur úr Landi og sonum auk Gunna Óla úr Skítamóral.

Þá mætti Sverrir Bergmann af Suðurnesjunum með gullbarkann og tryllti lýðinn. Þá átti enn eftir að kynna inn Pál Óskar. Dömurnar voru hvattar til að mæta með sléttbotna skó með sér í tösku til að geta stigið trylltan dans.

„Þessa veislu er ekki hægt að toppa“ og „höfum ekki skemmt okkur svona vel í mörg ár“ segja veislugestir á Facebook-vegg Margrétar í dag. Auðunn Blöndal birti myndband á Instagram í gærkvöldi og hafði á orði að gestgjafarnir hefðu gert sérstaklega vel við listamennina í mat og drykk baksviðs. Ekki var glæsileikinn minni úti í sal.

Margrét, sem var kjörin Ungfrú Ísland árið 1994 og keppti í Miss World, starfar sem leikskólakennari hjá Hjallastefnunni. Það vakti athygli fyrir áratug þegar Margrét færði Landspítalanum veglega gjöf í þakklætisskyni fyrir þá umönnun sem faðir hennar fékk eftir fólskulega árás á lögfræðistofu í Reykjavík. Um var að ræða loftdýnu og lyftara sem Margrét safnaði fyrir með aðstoð afmælisgesta sem lögðu í púkk.

Kristján er framkvæmdastjóri Skuggabyggðar ehf. sem hefur meðal annars komið að byggingu íbúða í Skuggahverfinu og RÚV reitnum við Efstaleiti í Reykjavík. Hafa þau hjónin breytt gömlu pósthúsi og veiðarfærahúsi í Vestmannaeyjum í hótel og lúxusíbúðir til útleigu.

Þá er Kristján í forsvari fyrir Lava Spring Vestmannaeyjar ehf. sem hyggur á gerð baðlóns í Vestmannaeyjum. Þau voru í fyrra verðlaunuð fyrir framtak ársins í Eyjum. 

Vel fór á því að afmælið var haldið í Smáranum, heimavelli Breiðabliks, enda er Kristján afar harður stuðningsmaður Blika. Þó gætti líka Eyjastemningar í veislunni eins og sjá má í Instagram-færslum Hreims að ofan sem söng Þjóðhátíðarlög fyrir gesti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.