Innlent

Rann­saka vinnu­brögð verk­takanna eftir sprenginguna

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Mikinn svartan reyk bar frá eldinum í gær. Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast þegar gaskútar þeyttust tugi metra frá nýbyggingunni.
Mikinn svartan reyk bar frá eldinum í gær. Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast þegar gaskútar þeyttust tugi metra frá nýbyggingunni. Aðsend

Vinnueftirlitið mun setja sig í samband við verktakafyrirtækið sem byggir húsið í Garðabæ þar sem sprenging varð í gær. Sérfræðingur hjá stofnuninni segir mikilvægt að sýna aðgát þegar unnið er með hættuleg efni.

Lögreglan rannsakar upptök sprengingarinnar sem varð í Garðabæ síðdegis í gær þegar eldur blossaði upp á þaki nýbyggingar í bænum. Gaskútar sprungu með tilheyrandi látum og þeyttust tugi metra. 

Sjá einnig: Lygi­­legt mynd­band sýnir veg­far­endur á harða­hlaupum frá sprengingunni

Tjörupappinn jafnan hitaður með gasi

Það kviknaði í svokölluðum tjörupappa sem mikið er notaður á hús hér og landi. Til þess að leggja hann á þarf að hita hann upp. Það er gjarnan gert með gasi og þess vegna voru gaskútarnir á staðnum. Mikil mildi þykir að enginn hafi slasast.

Guðmundur Mar Magnússon, sérfræðingur hjá vinnueftirlitinu, segir mikilvægt að huga að því hvernig hættuleg efni séu geymd á vinnustöðum. Mannvirki í byggingu séu undir sérstöku eftirliti.

Guðmundur Mar Magnússon er sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu.Vísir/SteingrímurDúi

„Það sem gildir um meðhöndlun hættulegra efna er náttúrulega að menn séu meðvitaðir um hættuna og þekki hætturnar, og meðhöndli efnin rétt; allar verklagsreglur í kringum svona efni séu fastar og þeim fylgt eftir. Vinnueftirlitið hefur eftirlit með vinnustöðum í byggingu eins og öðrum vinnustöðum. Þessir hlutir eru í skoðun hjá okkur alla daga. Við erum með teymi, mannvirkjateymi, sem sinnir eftirliti með mannvirkjagerð.“

Gunnar segir að starfsmenn Vinnueftirlitsins muni ræða við verktakana sem standa að byggingu hússins eftir helgi.

„Við munum nálgast þessa verktaka sem eru að sinna þessari vinnu og fara yfir þessi mál með þeim, áhættumat og annað í tengslum við þessa vinnu. Og þá uppfæra ef í ljós kemur að verklag er að einhverju leyti ábótavant. Þá munum við fara yfir það og koma með leiðbeiningar um úrbætur.“


Tengdar fréttir

„Maður fær eigin­lega bara svona í hjartað“

„Ég var nú bara að spila skák á Chess.com uppi í rúmi, svo sé ég svona í horninu á auganu svona eld-liti og þegar ég lít út sé ég eldtungurnar alveg uppi að krana og svo heyri ég sprenginguna. Og veggirnir og glerið – það hristist allt. Svo hringdi ég beint á neyðarlínuna eins og maður gerir,“ segir Yngvi Snær Bjarnason íbúi við Eskiás.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×