Innlent

Frá­farandi bæjar­stjóri sakaður um að greiða ekki fast­eigna­gjöld

Bjarki Sigurðsson skrifar
Jón Björn Hákonarson, fráfarandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Jón Björn Hákonarson, fráfarandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Fráfarandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar sem sagði af sér í gær hefur verið sakaður um að greiða ekki fasteignagjöld af óleyfisfasteignum í sveitarfélaginu. Í síðustu viku bárust bæjarfulltrúum gögn sem sýndu fram á að fasteignir væru á lóðum bæjarstjórans sem ekki eru með skráðar fasteignir. 

Fréttablaðið greinir frá þessu.

Jón Björn Hákonarson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, sagði af sér óvænt á fundi bæjarráðs í gær. Starfslok hans verða í mars en hann hefur starfað í sveitarstjórnarmálum síðan árið 1994.

Í síðustu viku fengu bæjarfulltrúar sveitarstjórnar erindi frá íbúa sem varðaði sumarbústaðalóðirnar Fönn 1 til 4 í Fannardal. Lóðirnar eru í eigu Jóns Björns og fjölskyldu hans en engin gjöld hafa verið greidd af fasteignum á lóðunum, einungis af lóðunum sjálfum. 

Engin mannvirki eru skráð á viðkomandi lóðir í fasteignaskrá en í samtali við Fréttablaðið segir Snorri Styrkársson, fjármálastjóri Fjarðabyggðar, að það hafi verið sótt um byggingarleyfi á lóðunum. Því var þó hafnað og upp úr því hafist margra ára deiliskipulagsgerð. Hús voru byggð á lóðunum þrátt fyrir þetta. 

Jón Björn neitar því að hann sé að segja af sér vegna þessa máls. Hann segist vera orðinn þreyttur eftir að hafa verið lengi á sveitarstjórnarvettvanginum. 

Það vakti mikla athygli í haust þegar innviðaráðuneytið sendi sveitarstjórn Fjarðabyggðar erindi vegna ráðningar Jóns Björns á sjálfum sér. Jón leiddi lista Framsóknarflokksins í kosningunum í fyrravor, tók sjálfur til máls þegar velja átti sveitarstjóra og greiddi atkvæði með því að hann yrði ráðinn. 

Niðurstaða ráðuneytisins var sú að Jón Björn væri ekki vanhæfur til að taka þátt í þessum umræðum og mátti hann greiða atkvæði með sjálfum sér. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×