Fimmtíu ár frá upphafi Heimaeyjargossins: Forsetinn á óljósar minningar um áhyggjur og angist Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2023 22:20 Páll Magnússon, Katrín Jakobsdóttir, Íris Róbertsdóttir og Guðni Th. Jóhannesson voru meðal þeirra sem komu saman í Vestmannaeyjum í kvöld til að minnast upphafs Heimaeyjargossins. Facebook/Katrín Jakobsdóttir Vestmanneyingar minnast í dag fimmtíu ára afmælis Heimaeyjargossins. Forseti Íslands á óljósar minningar um áhyggjur og angist landsmanna þegar gosið hófst.
Eldsumbrot hófust í Vestmannaeyjum á þessum degi árið 1973, fyrir sléttri hálfri öld síðan. Vestmannaeyingar komu saman í kvöld til þess að minnast atburðarins með blysför og fleira. Elísabet Inga skellti sér að sjálfsögðu til Vestmannaeyja í dag. Hún ræddi meðal annars við Vestmanneyinga sem rifjuðu upp minningar sínar af eldgosinu. Einn þeirra sagðist hafa fagnað gosinu enda þýddi það að hann slapp við að þreyta próf í Gísla sögu Súrssonar. Þá var einnig rætt við þá Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, og Pál Magnússon, forseta bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Engin gleðistund en góður hugur í Eyjamönnum Guðni segir góðan hug í Eyjamönnum þrátt fyrir að atburðir þeir sem minnst er í dag hafi ekki verið gleðistund. Í sumar verði goslokum svo minnst með virktum. Eyjamenn gengu blysför frá kirkjunni að Eldheimum í kvöld.Stöð 2 „Fólk vill hér upp til hópa halda á lofti minningu um þessar skelfilegu náttúruhamfarir og við getum lagt áherslu þar á þá samstöðu sem ríkti það æðruleysi sem ríkti, fumleysi. Það tókst hér að flytja á einni nóttu eða svo, nær alla íbúa á brott. Það eru mestu mannflutningar Íslandssögunnar,“ segir forsetinn. Sjálfur var Guðni ungur að aldri árið 1973. „Þarna var ég á fimmta ári og á óljósar minningar um þær áhyggjur og þá angist sem sem braust fram. Fólk þarna, á gosnóttina sjálfa, hafði ekki hugmynd um hvert framhaldið yrði. Mun hér byggð leggjast, af lokast höfnin? Fyrst og fremst þurfti að koma fólki í öruggt skjól. Það tókst,“ segir hann. Svo hafi þurft að bjarga því sem bjargað varð og þar hafi verið unnið þrekvirki. „En við vissum ekki fyrr en seint og um síðir að hér mundi þó fara betur en á horfðist að því leyti að höfnin hélst opin og hjól atvinnulífsins gátu snúist á ný. Fólk gat snúið til baka og hér er nú blómlegt samfélag og ég óska Vestmanneyingum alls hins besta,“ segir forseti Íslands. Lífsnauðsynlegt að minnast gossins Páll segist telja lífsnauðsynlegt að minnast gossins, enda sé gosið snar þáttur í því að vera Eyjamaður. „Við sem eldri erum höfum oft óttast aðeins að það kynni að falla á þetta fljótt og fyrir ungu fólki væri þetta í einhverri óskaplegri fjarlægð, bara eins og Tyrkjaránið eða eitthvað slíkt. Meðal annars þess vegna erum við að minnast þessara atburða með þeim hætti sem við gerum í dag og mér sýnist að þátttaka í þessu sé að minnsta kosti framar þeim vonum sem ég hafði gert mér um, að koma á köldu vetrarkvöldi til að minnast og þakka fyrir það hvað þetta gekk allt vel,“ segir Páll.
Heimaeyjargosið 1973 Vestmannaeyjar Tímamót Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Tengdar fréttir Táknrænt að veðrið og samgönguvandi séu eins og fyrir fimmtíu árum Eyjamenn minnast þess í dag að hálf öld er liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir óveður gærdagsins svipa til veðursins sem var þann 22. janúar árið 1973, með tilheyrandi samgönguvanda sem sé nokkuð táknrænt. 23. janúar 2023 12:43 Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn. 23. janúar 2023 09:39 Edda og Páll rifja upp Heimaeyjargosið: Bæjarstjórinn á Hlíðarenda og símar fastir í vegg Hálf öld er liðin frá Heimaeyjargosinu sem hófst aðfaranótt 23. janúar 1973. Fjallað var um þetta fyrsta eldgos sem hófst í byggð á Íslandi í þættinum 50 ár frá gosi, á Bylgjunni í morgun, sunnudag klukkan 9. Í þættinum spjallaði Sighvatur Jónsson við Eddu Andrésdóttur og Pál Magnússon um gosið. 22. janúar 2023 15:51 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Sjá meira
Táknrænt að veðrið og samgönguvandi séu eins og fyrir fimmtíu árum Eyjamenn minnast þess í dag að hálf öld er liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir óveður gærdagsins svipa til veðursins sem var þann 22. janúar árið 1973, með tilheyrandi samgönguvanda sem sé nokkuð táknrænt. 23. janúar 2023 12:43
Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn. 23. janúar 2023 09:39
Edda og Páll rifja upp Heimaeyjargosið: Bæjarstjórinn á Hlíðarenda og símar fastir í vegg Hálf öld er liðin frá Heimaeyjargosinu sem hófst aðfaranótt 23. janúar 1973. Fjallað var um þetta fyrsta eldgos sem hófst í byggð á Íslandi í þættinum 50 ár frá gosi, á Bylgjunni í morgun, sunnudag klukkan 9. Í þættinum spjallaði Sighvatur Jónsson við Eddu Andrésdóttur og Pál Magnússon um gosið. 22. janúar 2023 15:51