Grímur skipaður lögreglustjóri á Suðurlandi Atli Ísleifsson skrifar 20. janúar 2023 10:19 Grímur Hergeirsson hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurlandi síðan 1. júlí 2022. Stjr Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur skipað Grím Hergeirsson í embætti lögreglustjóra á Suðurlandi frá 1. apríl næstkomandi. Grímur hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurlandi síðan 1. júlí 2022.
Frá þessu segir á vef stjórnarráðsins. Þar kemur fram að Grímur hafi jafnframt gegnt starfi sem lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, en staða lögreglustjórans í Vestmannaeyjum hefur nú verið auglýst og er umsóknarfrestur til 4. febrúar. Skipað verður í þá stöðu frá og með 1. apríl næstkomandi. „Grímur Hergeirsson hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík 1996 og var hjá lögreglunni á Selfossi 1997-2000. Árið 2001 var hann kennari við Lögregluskóla ríkisins. Á árunum 2002-2004 var hann rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Selfossi en varðstjóri í almennri deild síðasta árið. Á árunum 2005-2007 vann Grímur hjá Sveitarfélaginu Árborg, sem verkefnastjóri íþrótta-, forvarna og menningarmála. Frá útskrift 2009 til 2014 var Grímur starfandi lögmaður í samstarfi við aðra. Hann var löglærður fulltrúi í um 9 mánuði hjá sýslumanninum á Selfossi á árunum 2014-2015. Árið 2015 færði hann sig til lögreglustjórans á Suðurlandi og var fyrst rannsóknarlögreglumaður, síðar löglærður fulltrúi ákærusviðs, en frá 2017 staðgengill lögreglustjóra og yfirmaður ákærusviðs embættisins. Grímur var settur lögreglustjóri á árinu 2020, fyrst á Suðurlandi og síðan á Suðurnesjum en frá nóvember 2020 hefur hann verið skipaður lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og frá júlí á síðasta ári verið settur lögreglustjóri á Suðurlandi. Eins og áður sagði hefur staða lögreglustjórans í Vestmannaeyjum nú verið auglýst,“ segir í tilkynningunni.
Lögreglan Árborg Vistaskipti Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira