Einelti fullorðinna og áhrif þess á börn; það sem börnin erfa og heldur áfram kynslóð eftir kynslóð Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar 8. janúar 2023 10:31 Þegar ég var barn þá horfði ég eins og flest börn á fullorðið fólk sem gott fólk. Sem einhvers konar verndarengla allra barna og á ákveðinn hátt lífsins kennara sem hjálpa börnum að komast á næsta og næsta stig í lífinu sem að sjálfsögðu þau eiga að gera og því sem betur fer gera í mörgum tilvikum. En ég komst að því mjög fljótt sem ungur strákur að þótt fólk sé komið á fullorðinsaldur þá þýðir það ekki endilega að sá þroski sem það ætti að hafa, hafi þróast með því í gegnum lífið sé til staðar eða einfaldlega góðmennska, þolinmæði kærleikur og væntumþykja fylgi fullorðnu fólki. Þegar ég var um 8 ára aldurinn var strákur sem ég þekkti lítillega í afmælisveislu og þessi strákur stamaði mikið. Ég stóð rétt fyrir utan eldhúsið á heimilinu á meðan strákurinn var að koma frá sér að hann vildi meira að drekka. Þegar hann loksins kom þessu til skila þá fór hann fram og þá byrjaði móðir drengsins sem átti afmæli að pirra sig yfir stráknum svo að foreldrar sem voru á staðnum og sum börn heyrðu vel. Pirringurinn var það mikill að halda mætti að jarðýta hefði eyðilagt garðinn hennar. Börnin heyrðu og sáu hegðun konunnar og þessum strák var strítt mikið. Enda töldu börnin það vera bara eðlilegt að gera eins og konan, fyrirmyndin þeirra, fullorðna manneskjan. Ég sem faðir tek eftir því að börn heyra allt, líka þegar maður heldur að þau geri það ekki. Ég tek líka eftir hegðun fullorðins fólks þar sem það situr við eldhúsborðið og talar illa um náungann og jafnvel foreldra annarra barna sem börnin heyra og taka svo til sín og telja auðvitað eðlilegt að hegða sér eins og mamma sín og pabbi. Svona erfist þessi eineltishegðun kynslóð eftir kynslóð þar sem foreldrar tala illa um aðra svo börn þeirra og annað fólk heyrir eða taka þátt í samtalinu og börnin verða sjálfkrafa eins og foreldrar sýnir sem beita aðra einelti eða ofbeldi ì mörgum myndum eins og mamma sín og pabbi. Stundum eru þetta litlir hlutir eins og foreldrar sem hafa farið í gegnum skilnað. Ég veit t.d. um dæmi þegar ungur strákur undir níu ára aldri kom til föður síns frá barnsmóður og sagði; ,,Mamma sagði að þú ættir ljótan bíl." Og einnig ,,Mamma sagði að þú værir vondur pabbi." Annað dæmi er að sagt var við ungan strák á sama aldri sem hann hafði eftir móðir sinni og sagði við föður sinn: ,,er kærasta þín númer tuttugu pabbi?, mamma nefnilega sagði það." Ég gæti talið upp mörg svona dæmi sem þið þekkið flest og flest þeirra mun verri sem ég vil ekki nefna hér. Svona dæmi finnst kannski sumum lítilvæg en þetta hegðunarmynstur þróast í gegnum árin og börnin heyra neikvæðar samræður foreldra þar sem það er dæmt og talað illa um foreldra annarra barna og börn þeirra og til verður eineltishringur sem börn beita önnur börn vegna foreldranna sem jafnvel getur endað með að ungt fólk tekur líf sitt eins og við höfum séð gerast hér á Íslandi. Ég man hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég komst að því að fullorðið fólk leggur aðra í einelti eins og börnin í skólanum. Fullorðna fólkið sem átti að passa mann og vera fyrirmynd fyrir komandi ár og líf manns. Eftir því sem ég varð eldri þá tók ég meira og meira eftir þessu og varð einfaldlega fyrir miklum vonbrigðum. Það er sorglegt að horfa upp á börn verða að eineltissegjum því þau erfa hegðun og tal foreldra sinna. Börn sem kannski hefðu orðið fyrirmyndir ef þau hefðu verið alin upp í öðru umhverfi með fyrirmyndum sem þau eiga skilið. Ég hef orðið vitni af kennurum sem fela ekki pirring sinn yfir börnum sem eru ofvirk eða eru með ADHD og sjálfkrafa verða þau börn útundan og eiga erfitt með að eignast vini því þau eru eitthvað "öðruvísi". Börn sem er útskúfað af öðrum börnum og lenda í miklu einelti eiga oftar en ekki eftir að fara niður dimman veg í lífinu þegar þau verða eldri því þau sækja viðurkenningu frá öðrum hvar sem þau finna hana og oftar en ekki einstaklingum sem deila sömu reynslu og þau og verða á endanum andfélagsleg þegar þau hefðu getað blómstrað í lífinu ef rétt hefði verið haldið utan um þau. Gróa á leyti þrífst því miður allsstaðar og fólk hópar sig saman og talar illa um náungann til að líða betur með sjálfan sig og það eru börnin okkar sem gjalda fyrir það. Það skiptir engu máli hvort sögurnar eru sannar, ýktar eða einfaldlega losnar, þetta er eitthvað hegðunarmynstur sem erfst hefur kynslóð eftir kynslóð. Ég held að við getum lært ýmislegt af okkar eigin börnum sem í sakleysi sínu og kærleika sýna okkur í raun hvernig við ættum að hegða okkur sem fullorðið fólk. Sjálfsmorðstíðni á Íslandi hefur og er að aukast á milli ára mjög hratt og er einfaldlega afrakstur útskúfunar fólks frá hópum í samfélaginu, eineltis í æsku og á fullorðinsaldri og annarra áfalla sem fólk hefur aldrei getað unnið úr. Það er mjög furðulegt að fólk geti ekki myndað félagsleg tengsl hvort við annað nema í gegnum neikvæð samtöl eða umræður þar sem einstaklingar eru teknir fyrir, hópar eða fjölskyldur og að það sé gengið frá kaffiborðinu með bros á vör og vellíðan. Þessa þróun hef ég séð aukast í stað þess að fólk sitji við kaffiborðið með jákvæða umræðu um náungann og gengið frá kaffiborðinu ánægt með sjálft sig og náungann. Ef börnin okkar geta komið til okkar og sagt upp úr þurru ,, Pabbi eða Mamma ég elska þig." Afhverju getum við ekki sýnt sama kærleika til hvors annars og kennt börnunum okkar hvað það raunverulega þýðir að vera fullorðinn? Börnin okkar eru bestu kennararnir mínir í lífinu. Þau sýna mér hvað það þýðir að vera raunverulega fullorðinn. Gísli Hvanndal Jakobsson Eilífðarstúdent Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar? Elfa Ýr Gylfadóttir Skoðun Af hverju eru kennarar að fara í verkfall? Anton Már Gylfason Skoðun Val Vigdísar Skúli Ólafsson Skoðun Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Árið 1975 er að banka Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands? Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun Kennarar segja: „Nóg komið!“ – Verkfall fyrir virðingu og verðskulduð réttindi Jónas Sen Skoðun Friður á jörðu Þröstur Friðfinnsson Skoðun Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi Sæunn Kjartansdóttir Skoðun Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ertu á krossgötum? Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Máttur kaffibollans Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kennarar segja: „Nóg komið!“ – Verkfall fyrir virðingu og verðskulduð réttindi Jónas Sen skrifar Skoðun Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Árið 1975 er að banka Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar? Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Val Vigdísar Skúli Ólafsson skrifar Skoðun Friður á jörðu Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Af hverju eru kennarar að fara í verkfall? Anton Már Gylfason skrifar Skoðun Opið bréf til Íslandspósts ohf. Gróa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gaza getur ekki beðið lengur Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Ísland yrði betra með aðild að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun SVEIT – Kastið inn handklæðinu Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar Skoðun Skjáfíkn - vísindi eða trú? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið eða nasismi Snorri Másson skrifar Skoðun Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi Sæunn Kjartansdóttir skrifar Skoðun Listin að styðja en ekki stýra Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Með vægi í samræmi við það Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hugvíkkandi efni: Forvitni umfram dómhörku Bergsveinn Ólafsson skrifar Skoðun Velferðartækni er það lykillinn að sjálfbærara heilbrigðiskerfi? Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Hindrum fleiri græn gímöld með einföldun regluverks Ásta Logadóttir,Trausti Björgvinsson skrifar Skoðun Vegna FB færslu Kristins Hrafnssonar: Misskilningur um endurgreiðslukerfi kvikmynda Ólafur William Hand skrifar Skoðun Hvernig tölum við um mat í kringum börnin okkar? Berglind Lilja Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Fangelsismál - Sparnaður og endurhæfing Ólafur Ágúst Hraundal skrifar Skoðun Syndaaflausnin er svo að við ætlum að læra af þessu „á ykkar kostnað“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi Einar Helgason skrifar Sjá meira
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar? Elfa Ýr Gylfadóttir Skoðun
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg? Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Kennarar segja: „Nóg komið!“ – Verkfall fyrir virðingu og verðskulduð réttindi Jónas Sen skrifar
Skoðun Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands? Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Skoðun Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar? Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað Andri Þorvarðarson skrifar
Skoðun Velferðartækni er það lykillinn að sjálfbærara heilbrigðiskerfi? Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Hindrum fleiri græn gímöld með einföldun regluverks Ásta Logadóttir,Trausti Björgvinsson skrifar
Skoðun Vegna FB færslu Kristins Hrafnssonar: Misskilningur um endurgreiðslukerfi kvikmynda Ólafur William Hand skrifar
Skoðun Syndaaflausnin er svo að við ætlum að læra af þessu „á ykkar kostnað“ Davíð Bergmann skrifar
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar? Elfa Ýr Gylfadóttir Skoðun
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg? Gunnar Ármannsson Skoðun