Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 13. desember 2022 18:29 Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Vísir/Vilhelm Lögregla hefur lokið rannsókn á tugum meintra kynferðisbrota karlmanns á sextugsaldri. Í öllum tilvikum er maðurinn grunaður fyrir að hafa brotið gegn stúlkum undir 15 ára aldri, á þriðja tug stúlkna. Karlmaðurinn hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot í maí á þessu ári.
Mbl.is greinir frá því að brotin, sem hafa verið til rannsóknar, hafi verið sambærilegs eðlis og brotin sem maðurinn, Brynjar Joensen Creed, var dæmdur fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í maí. Þá var hann dæmdur fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum á grunnskólaaldri, sumum oftar en einu sinni, og beitt þær, auk fimmtu stúlkunnar, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreitni. Málið rataði til lögreglu í fyrra eftir kæru stúlku til Barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar. Stúlkan, sem var undir lögaldri, lýsti samskiptum við mann sem kallaði sig Sigga. Hún hafði hitt hann nokkrum sinnum, hann tekið af henni klámfengin myndbönd gegn greiðslu í formi peninga, fata, áfengis og veipvökva. Í eitt skipti hefði hann ekið með hana á afskekktan stað þar sem hún hefði ekki þorað að segja nei þegar hann sagði henni að veita sér munnmök. Þá lýsti stúlkan því að Brynjar hefði keypt kynlífstæki fyrir hana og vinkonu hennar, annan brotaþola í málinu. Hann hefði beðið þær að nota tækið og senda sér myndbönd. Þær hefðu gert það en myndbandið hefði farið í meiri dreifingu. Þannig hefði málið ratað á borð barnaverndar. Stúlkan sagði manninn einnig hafa sent sér myndbönd af öðrum stúlkum stunda munnmök með honum. Tálbeituaðgerð var sett í gang í kjölfarið. Hún fólst í því að lögregla tók yfir síma brotaþola og hélt áfram samskiptum við Brynjar. Aðgerðunum lauk með handtöku þremur dögum síðar. Framkvæmd var húsleit á heimili hans þar sem lagt var hald á fartölvu, flakkara, farsíma, harða tölvudiska, minnislykla og geisladiska. Í ljós kom að Brynjar lét stelpurnar spila stigaleik þar sem hann verðlaunaði þær fyrir kynferðislegar athafnir. Því fleiri stig eftir því sem athafnir voru grófari. Þannig voru fimm stig gefin fyrir að veifa, brosa eða hoppa en þúsund stig fyrir að sýna kynfæri og leika sér með kynlífshjálpartæki. Lögreglumaður sem skoðaði rafræn gögn úr síma Brynjars sagði fyrir dómi að lögregla hefði fundið kennitölur á um 100 stúlkum sem Brynjar hefði verið í sambandi við. Hann hefði verið í kynferðislegum samskiptum við um 240 kvenmenn og þar af hefðu tæplega 110 verið undir átján ára aldri. Í símum Brynjars hefðu líklega verið nokkur hundruð kynferðislegra mynda og myndskeiða.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Lögreglumál Mál Brynjars Joensen Creed Tengdar fréttir Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22. júní 2022 13:34 Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. 19. maí 2022 15:35 Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. 13. maí 2022 16:23 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Fleiri fréttir „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Sjá meira
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. 22. júní 2022 13:34
Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. 19. maí 2022 15:35
Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. 13. maí 2022 16:23